Útlendingastofnun leitar að nýjum samstarfsaðila

Útlend­inga­stofnun leitar nú að nýjum sam­starfs­að­ila til að fram­kvæma ald­urs­grein­ingar á tönnum, en Háskóli Íslands hefur ákveðið að fram­lengja ekki samn­ing sinn við stofn­un­ina um slíkar grein­ingar.

Útlendingastofnun leitar að nýjum samstarfsaðila
Háskóli Íslands Háskóla­ráð skól­ans ákvað að samn­ingur hans við Útlend­inga­stofun um fram­kvæmd tann­grein­inga á umsækj­endum um alþjóð­lega vernd yrði ekki end­ur­nýj­aður. Útlend­inga­stofnun leitar nú að nýjum sam­starfs­að­ila.

Útlend­inga­stofnun leitar nú að nýjum sam­starfs­að­ila til að fram­kvæma ald­urs­grein­ingar á tönnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, en háskóla­ráð Háskóla Ísland ákvað á fundi sínum á föstu­dag­inn að fram­lengja ekki samn­ing skól­ans við Útlend­inga­stofnun um slíkar grein­ingar. 

Tilkynnt var á vef­síðu Háskóla Íslands í dag að samn­ing­ur­inn yrði ekki fram­lengdur. Þar segir meðal ann­ars að þegar hann var und­ir­rit­aður í mars í fyrra hafi HÍ komið ábend­ingum til dóms­mála­ráð­herra um að í bókun barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna komi meðal ann­ars fram að ríki skuli not­ast við fjöl­þætt mat á lík­am­legum og and­legum þroska barna og að forð­ast eigi að not­ast við klínískar ald­urs­grein­ingar á tönnum.

HÍ hafi komið sömu sjón­ar­miðum á fram­færi í athuga­semdum við frum­varp um breyt­ingu á útlend­inga­lögum síð­ast­liðið haust.  Í skrif­legu svari til Stund­ar­innar segir Þór­hildur Líndal, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar, að þessum ábend­ingum háskól­ans hafi verið komið á fram­færi við dóms­mála­ráð­herra og því geti stofn­unin ekki svarað því hvernig brugð­ist var við þeim. 

Tanngreiningin í samræmi við lög

Umræddur samn­ingur gildir til 25. mars næst­kom­andi. Í til­kynn­ingu á vef­síðu Útlend­inga­stofn­unar segir að stofn­unin vilji árétta að verk­lag hennar við ákvörðun á aldri, sem byggi á „heild­stæðu mati á aðstæðum ein­stak­lings, frá­sögn hans, fram­lögðum gögnum og eftir atvikum ald­urs­grein­ingu á tönnum, sé í fullu sam­ræmi við ákvæði gild­andi laga og reglu­gerðar um útlend­inga,“ eins og segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár