Samherji hyggst yfirtaka Eimskip með félagi sem á Kýpurfélagið sem greiddi mútur

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji gæti orðið eini eig­andi Eim­skipa­fé­lags­ins ef aðrir hlut­hafar sam­þykkja lög­bundið yfir­tökutil­boð félags­ins. Fyr­ir­tækið sem Samherji notar til að halda utan um hluta­bréfum í Eim­skipum á einnig félög á Kýpur sem halda utan um útgerð Samherja í Namibíu og sem greitt hafa mútur. Innlend og erlend starf­semi Samherja teng­ist með beinum hætti í gegnum umrætt félag.

Samherji hyggst yfirtaka Eimskip með félagi sem á Kýpurfélagið sem greiddi mútur
Sama félag á Eimskip og Namib­íu­út­gerð­ina Mynd: Vísir/Sigurjón

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji mun gera öðrum útistand­andi hlut­höfum Eim­skipa­fé­lags  Íslands yfir­tökutil­boð í hluta­bréf þeirra í skipa­fé­lag­inu í gegnum eign­ar­halds­fé­lag sem haldið hefur utan um útgerð Samherja í Namibíu og sem á félag á Kýpur sem greiddi mútur til ráða­manna í Namibíu á árunum 2014 til 2019.

Tekið skal fram að for­stjóri Samherja, Björgólfur Jóhanns­son, hefur neitað því að Samherji hafi greitt mútur í Namibíu, meðal ann­ars á þeim for­sendum að eng­inn núver­andi eða fyrr­ver­andi starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið dæmdur fyrir þetta. Áður en Björgólfur tók við starf­inu af Þor­steini Má Bald­vins­syni hafði sá síð­ar­nefndi hins vegar ekki neitað mútu­greiðsl­unum í Namibíu aðspurður um málið og hefur hann ekki ennþá gert það per­sónu­lega. 

Samherji greindi frá því á þriðju­dags­kvöld að umrætt félag þess á Íslandi, Samherji Holding ehf., myndi gera öðrum hlut­höfum í Eim­skipum yfir­tökutil­boð í hluta­bréf þeirra í félag­inu í kjöl­farið á því að útgerð­ar­fé­lagið keypti rúm­lega 3 pró­senta hlut í því með fram­virkum samn­ingi. Fyrir vikið fór eign­ar­hlutur Samherja Holding upp fyrir 30 pró­sentin og sökum þessa ber félag­inu að gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð í bréf þeirra.

Samherji gæti átt Eimskipt eittSvo gæti farið að Samherji muni eiga Eim­skipa­fé­lag Íslands eitt, ef gengið verður að yfir­tökutil­boði félags­ins.

Líkt og Björgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja, sagði í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands á þriðju­dags­kvöldið: „Samherji Holding hefur aukið hlut sinn í Eim­skipa­fé­lagi Íslands hf. um 3,05% í 30,11% í fyr­ir­tæk­inu. Samherji mun nú,  innan fjög­urra vikna,  gera öðrum hlut­höfum til­boð svo sem lög áskilja. Til­gangur Samherja með þessum auknu hluta­fjár­kaupum er fyrst og fremst að sýna þá trú sem Samherji hefur á rekstri Eimskips,  þeim árangri sem náðst hefur að unda­förnu og á eftir að koma betur í ljós á næstu miss­erum.“

Stærstu hlut­hafar Eim­skipa­fé­lags­ins eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eins og Gildi,  Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og fleiri sjóðir. Sam­herj­a­fé­lagið er hins vegar stærsti ein­staki hlut­haf­inn.  

Af þessu sést hvernig rekstur og við­skipti Samherja í Namibíu, sem og í öðrum Afr­íku­ríkjum, og Kýpur teng­ist starf­semi Samherja á Íslandi með óbeinum hætti í gegnum það alþjóð­lega net eign­ar­halds­fé­laga sem Samherji hefur byggt upp í gegnum árin og sem teygir sig víða um lönd. 

Nefnt skal að Björgólfur Jóhanns­son starf­aði ekki hjá Samherja á þeim sem mútu­greiðsl­urnar áttu sér stað í Namibíu en þessar greiðslur, og tengd mál, eru nú til rann­sóknar í Namibíu og á Íslandi. 

Kýpurfélagið sem greiddi múturnar

Félagið Samherji Holding ehf. hét áður Samherji IT ehf. og skipti félagið um nafn í kjöl­farið á því að Samherja hf. var skipt upp í tvö félög árið 2018. Innlenda starf­semin, og starf­semi Samherja í Færeyjum, er inni í félag­inu Samherji Ísland ehf. á meðan fjár­fest­ingin í Eim­skipum og fjár­fest­ingar Samherja erlendis, meðal ann­ars í Nambíu, eru inni í félag­inu Samherji Holding ehf., í gegnum önnur eign­ar­halds­fé­lög.

Samherji Holding ehf. á félag sem heitir Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Sæból ehf. og er það þetta félag sem á tvö eign­ar­halds­fé­lög á Kýpur, Esju Seafood Limited og Esju Shipping Limited, sem kalla má mið­punkt erlendrar starf­semi Samherja. Þessi félög hétu Fidelity Bond Invest­ments og Miginato Holding Limited. 

Bæði þessi félög voru með banka­reikn­inga í DNB bank­anum norska þar til skömmu eftir að Sam­herj­a­málið kom upp í í Namibíu en þá sagði DNB upp við­skipt­unum við Samherja. Fyrir skipt­ing­una á Sam­herj­a­sam­stæð­unni í tvennt 2018 var Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Sæból ehf. dótt­ur­fé­lag Samherja hf.

Esja Seafood Limited hefur bæði verið eig­andi eins félags Samherja í Namibíu, Katla Seafood Namibia, og einnig var þetta félag notað til að greiða hálfan millj­arð króna í mútur til félags­ins Tunda­vala Invest­ments Limited í Dubaí, eins og rakið hefur verið í umfjöll­unum Stund­ar­innar, Kveiks og Al Jazeera, á grund­velli gagna frá Wikileaks.

Eigandi Tunda­vala Invest­ments var athafna­mað­ur­inn James Hatuikulipi sem er einn af fjór­menn­ing­unum sem nú situr í gæslu­varð­haldi í Namibíu, grun­aður um að hafa tekið við mútu­greiðslum frá Samherja, meðal ann­ars umræddum greiðslum frá Esju Seafood. 

Kaupa og selja fisk frá Íslandi  

Eins og Stundin fjall­aði um í apríl í fyrra, þegar blaðið fjall­aði um árs­reikn­inga þess­ara Kýp­ur­fé­laga, eru þessi tvö félög Samherja á Kýpur, Esja Shipping Limited og Esja Seafood Limited, einnig notuð til að kaupa og selja fisk frá Íslandi og til ann­arra landa. 

Eins og sagði í umfjöllun Stund­ar­innar þá eiga félögin í miklum við­skiptum með fisk frá íslenskum dótt­ur­fé­lögum Samherja og kaupa á hverju ári fiskaf­urðir frá þeim og öðrum erlendum félögum Samherja upp á millj­arða króna. Árið 2014 keypti Esja Seafood til dæmis fiskaf­urðir af félögum Samherja á Íslandi og í öðrum löndum fyrir tæp­lega 16,6 millj­ónir doll­ara, eða rúm­lega 2,1 millj­arð íslenskra króna og árið áður námu þessi við­skipti 14 millj­ónum doll­ara, eða rúm­lega 1,6 millj­örðum króna. Í árs­reikn­ingnum er tekið fram að þessi við­skipti við tengda aðila séu gerð á „mark­aðs­verði“ en ómögu­legt er að ganga úr skugga um það á hvaða for­sendum þau eru gerð og hvort fisk­ur­inn sé seldur til Kýpur á sama verði og fiskur sem Samherji selur til ótengdra aðila. 

Félögin á Kýpur voru einnig notuð til að selja þann fisk sem félög Samherja hafa veitt í Namibíu og þar áður í Marokkó og Márit­aníu í gegnum útgerð­ina Kötlu Seafood sem Samherji seldi árið 2013. Eins og Stundin fjall­aði um koma mögu­legar mútu­greiðslur einnig fyrir í heim­ildum um starf­semi Samherja í Márit­aníu og Marokkó en tekið skal fram að engar heim­ildir eru fyrir því að slíkar mútu­greiðslur hafi átt sér stað, líkt og raunin var í Namibíu síðar. 

Þessar upp­lýs­ingar voru áhuga­verðar þar sem Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafði sagt við Stundina í febr­úar 2019 að Samherji hefði aldrei stofnað fisk­sölu­fyr­ir­tæki á Kýpur. „Við stofn­uðum aldrei sölu­fyr­ir­tæki á Kýpur og það er alveg ljóst hvar sölu­fyr­ir­tæki Samherja eru,“ sagði Þor­steinn aðspurður um rekst­ur­inn á Kýpur. 

Í ásreikn­ingi Esju Seafood er sala á fiski hins vegar sögð vera einn helsti til­gangur félags­ins: „Helsti til­gangur fyr­ir­tæk­is­ins hélt áfram að vera sala á fiski, fram­leiga á fiski­skipum, eign­ar­hald á lang­tíma­fjár­fest­ingum og fjár­mögnun dótt­ur­fé­laga og ann­arra tengdra félaga.“

 „Við stofn­uðum aldrei sölu­fyr­ir­tæki á Kýpur“

Þessi félög á Kýpur taka því við og miðla fjár­munum innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og út úr henni og halda utan um eign­ar­hald á útgerðum í löndum eins og í Namibíu. Eim­skipa­fé­lagið er svo bara eitt af þeim félögum sem er inni í þeirra félaga­sam­stæðu sem Samherji Holding ehf. heldur utan um í dag. 

Hagnaðist um 70 milljón dollara

Dæmi um það hvernig Samherji hefur tekið fjár­muni frá starf­semi sinni í Afríku og til Íslands í gegnum þessi Kýp­ur­fé­lög og móð­ur­fé­lag þess, Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Sæból sem áður hét Polaris Seafood, er til dæmis hvernig 35 millj­ónir doll­ara runnu til Samherja hf. í gegnum þessa félaga­sam­stæðu árið 2013. Árið 2013 seldu dótt­ur­fé­lög Samherja á Kýpur útgerð­ina Kötlu Seafood til rúss­neska útgerð­ar­manns­ins Vitali Orlov fyrir um 20 millj­arða króna. Þetta ár voru 35 millj­ónir doll­ara greiddar í arð til Samherja hf. frá Polaris Seafood, nú Fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Sæbóli ehf., eða 4,2 millj­arðar króna á gengi þess tíma, líkt og fjallað var um í DV árið 2013.  

Samherji var á þessum tíma einnig byrjað að veiða í Namibíu en þetta gerð­ist árið 2012, um það leyti sem Samherji fór að átta sig á því að erfitt gæti orðið fyrir félagið að kom­ast yfir sjó­frystikvóta í Marokkó og Márit­aníu og að mögu­lega gæti verið lag að selja þá útgerð sem Samherji rak í þessum löndum. Veiðar Samherja í Namibíu áttu svo eftir að aukast mikið á næstu árum, sem og þær fjár­hæðir sem útgerðin greiddi til spilltra ráða­manna í land­inu í skiptum fyrir mak­ríl­kvóta. 

Af þessu sést svo meðal ann­ars hvernig meðal ann­ars Afr­íku­starf­semi Samherja er notuð til að fjár­magna móð­ur­fé­lagið í Sam­herj­a­sam­stæð­unni á Íslandi og fjár­fest­ingar þess í ann­ars konar rekstri en sjáv­ar­út­vegi hér á landi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár