Tæplega helmingur félaga hafa ekki skráð raunverulega eigendur

Skráning raun­veru­legra eig­enda er ein af for­sendum þess að Ísland fari af gráum lista um pen­inga­þvætti. Fimm þús­und félög hafa skráð upp­lýs­ing­arnar, án þess að und­ir­rita þær form­lega. Dag­sektum kann að vera beitt.

Tæplega helmingur félaga hafa ekki skráð raunverulega eigendur
Snorri Olsen Rík­is­skatt­stjóri sér um skrán­ingu á raun­veru­legum eig­endum, sem er meðal ann­ars til þess fallin að sporna gegn pen­inga­þvætti.

Tæplega helm­ingur félaga hefur ekki skráð raun­veru­lega eig­endur sína hjá rík­is­skatt­sjóra innan þess frests sem var veittur. Þá hafa þús­undir félaga skráð upp­lýs­ing­arnar án þess að þær séu und­ir­rit­aðar, en undir­ritun getur ein­ungis átt sér stað með raf­rænum skil­ríkjum.

Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar segir emb­ætti rík­is­skatt­stjóra að 55,79 pró­sent allra félaga hafi verið búið að skrá upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur þegar frest­ur­inn rann út 2. mars. Eftir þann frest er rík­is­skattstjóra heim­ilt að beita félög dag­sektum, en emb­ættið hefur ekki gripið til þess úrræðis enn sem komið er. Dag­sekt­irnar geta numið frá 10 þús­und til 500 þús­und krónum á dag og er heim­ilt að ákveða þær í sam­hengi við stærð rekst­urs­ins.

Þá höfðu 5.149 félög skráð raun­veru­lega eig­endur þegar frest­ur­inn rann út án þess þó að skrán­ingin hafi verið und­ir­rituð af eig­end­unum. Þurfa þeir að skrá sig inn á per­sónu­legu þjón­ustu­svæði ein­stak­linga hjá rík­is­skatt­stjóra og skrifa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár