„Við erum í fótbolta mjög lengi, í þrjá tíma“
FréttirCovid-19

„Við erum í fót­bolta mjög lengi, í þrjá tíma“

Þeir Ottó Örn Ragn­ars­son, Jakob Már Kjart­ans­son og Alex­ander Sig­ur­steins­son eru allir níu ára og eru í 4. bekk í Vatns­enda­skóla í Kópavogi. Skóla­dag­ur­inn þeirra hefur nú verið styttur um tvo tíma á dag og þeir fara í skól­ann þrjá daga í viku. Allar íþrótta­æf­ingar þeirra hafa fallið niður, en félag­arnir eru iðnir við að finna sér eitt­hvað fyrir stafni og hafa lært nokkur ný orð með því að fylgj­ast grannt með fréttum af útbreiðslu kór­óna­veirunnar.
Sjálfboðaliðar fara heim til fólks með mat
FréttirCovid-19

Sjálf­boða­liðar fara heim til fólks með mat

„Ég sat fyrir framan sjón­varpið með mann­inum mínum eitt kvöldið og ég ætl­aði ekki að sætta mig við að það yrði ekki hægt að hjálpa fólk­inu,“ segir Rósa Braga­dóttir, sem er ein þeirra sjálf­boða­liða sem sinna mat­ar­út­hlut­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á meðan sam­komu­bann er í gildi og mun slysa­varna­fé­lagið Lands­björg keyra vörur heim til fólks. Rósa, sem er öryrki, segir að það að hjálpa öðrum hjálpi sér að líða vel.
Blað brotið í sögu Alþingis
FréttirCovid-19

Blað brotið í sögu Alþingis

„Þetta er afar óvenju­legt og hefur lík­lega aldrei gerst áður í sögu Alþingis, “ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, um þá ákvörðun for­sætis­nefndar Alþingis að engir þing­fundir verði haldnir næsta mán­uð­inn, frá og með deg­inum í dag og til 20. apríl til að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Starf­semi Alþingis hefur nú verið skert eins mikið og mögu­legt er.

Mest lesið undanfarið ár