Hundruð Íslendinga sýna áströlsku ekkjunni samhug

Áströlsk kona sem missti eig­in­mann sinn fyrir tveimur dögum er í ein­angrun hér á landi vegna COVID-19 smits. Stofnuð hefur verið síða á Facebook þar sem fólki gefst færi á að senda henni sam­úð­ar­kveðjur og hlý­hug.

Íslendingar sýna hlýhug
Íslend­ingar sýna hlý­hug Fjöldi fólks hefur sent ástr­al­skri konu sem missti mann­inn sinn á Húsavík fyrir tveimur sam­úð­ar­kveðjur. Mynd: Shutterstock

Hátt í 2.000 Íslend­ingar hafa gengið í hóp á Facebook sem ætl­aður er til að sýna sam­hug með ástr­al­skri konu sem missti mann­inn sinn en hann lést á Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsavík 16. mars síð­ast­lið­inn. Konan er smituð af COVID-19 veirunni og hefur verið sett í ein­angrun vegna þess.

Maðurinn leit­aði á Heil­brigð­is­stofn­un­ina vegna alvar­legra veik­inda en lést skömmu eftir kom­una þangað. Ekki hefur feng­ist upp­gefið hvers eðlis veik­indin voru en hins vegar var mað­ur­inn smit­aður af COVID-19 kór­óna­veirunni. Samkvæmt því sem kom fram í til­kynn­ingu Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, sótt­varna­læknis og Almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra voru þau sjúk­dóms­ein­kenni sem mað­ur­inn sýndi ekki dæmi­gerð fyrir COVID-veiruna en unnið sé að því að skera úr um hver dán­ar­or­sök var.

Í gær­kvöldi, 17. mars, var vakin athygli á því í Facebook-hópnum Góða systir hví­líkt kval­ræði eft­ir­lif­andi eig­in­kona manns­ins hlyti að vera að ganga í gegnum. Hún væri alein í ókunn landi, að kljást við ill­vígan sjúk­dóm og sett í ein­angrun þess vegna, aðeins fáeinum stundum eftir að hafa misst mann­inn sinn. Þá væri ólík­legt að ætt­ingjar hennar eða vinir gætu ferð­ast hingað til lands, henni til stuðn­ings, vegna ferða­banns og nið­ur­felldra flug­ferða.

„Mér datt í hug hvort sam­hugur og sam­úð­ar­kveðjur gætu verið henni ein­hvers konar huggun, eða amk myndi hún þá vita að okkur er ekki sama og finnum til með henni og að hún sé ekki alveg ein.

Hvernig hljómar ef við myndum búa til fb grúppu og setja inn fal­legar kveðjur til hennar?

Ég veit að þetta er ekki mikið, en ég veit hvað sam­hugur getur verið dýr­mætur þegar sorgin er yfir­þyrm­andi,“ skrif­aði Rakel Jóns­dóttir sem fyrst vakti máls á aðstæðum kon­unnar.

Hug­myndin hlaut þegar í stað mik­inn hljóm­grunn og skömmu fyrir mið­nætti var sett upp Facebook-síða í þessu skyni, sem ber heitið With love from us. Mikill fjöldi fólks, ekki síst konur, hefur gengið í hóp­inn og fjölgar mjög hratt. Fólk birtir þar sam­úð­ar­kveðjur til áströlsku kon­unnar hvert á fætur öðru með von um að það verði henni eitt­hvað hald­reipi í sorg sinni og erf­iðum aðstæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár