Ætlar ekki að fórna æru sinni og Kára og hættir við formannsframboð
Fréttir

Ætlar ekki að fórna æru sinni og Kára og hættir við for­manns­fram­boð

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur dregið fram­boð sitt til for­manns SÁÁ til baka og sagt sig úr aðal­stjórn. Kári Stef­áns­son segir sig einnig úr aðal­stjórn SÁÁ. Hún segir að það ríki „hálf­gert stríðs­á­stand“ í SÁÁ en nú séu fyrr­ver­andi stjórn­endur félags­ins að „hlaða í bál­köst á sam­fé­lags­miðlum fyrir Kára“.
Viðar segir ósannar ásakanir hluti af árásum á Sólveigu
Fréttir

Viðar segir ósannar ásak­anir hluti af árásum á Sólveigu

Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar, segir í yfir­lýs­ingu að hann hafni því að hafa sýnt kven­fyr­ir­lit­ingu gagn­vart starfs­fólki á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins. Hann segir ásak­anir og tíma­setn­ingu þess að upp­lýs­ingar úr vinnu­staða­grein­ingu var lekið sé liður í her­ferð gegn Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, fyrr­ver­andi for­manni og for­manns­fram­bjóð­anda, í félag­inu.
Þóra Kristín býður sig fram til formanns SÁÁ
Fréttir

Þóra Kristín býður sig fram til for­manns SÁÁ

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur til­kynnt um for­manns­fram­boð í SÁÁ. Hún vill að stofnuð verði sann­leiks­nefnd til að taka á ofbeldis- og áreitn­is­málum innan vébanda sam­tak­anna í for­tíð og fram­tíð. Kosið er um nýjan for­mann eftir að Einar Her­manns­son sagði af sér eftir að upp komst um að hann hefði keypt vænd­is­þjón­ustu af skjól­stæð­ingi sam­tak­anna.
Hættulegasta flóttaleið heims
Fréttir

Hættu­leg­asta flótta­leið heims

Rúmlega 2.000 mann­eskjur létu lífið á leið­inni yfir Mið­jarð­ar­hafið í fyrra, þar af 75 börn. 900 börn, hið minnsta, hafa síð­ustu sjö ár horfið í Mið­jarð­ar­hafið. Yngsta barnið sem bjargað hefur verið um borð í björg­un­ar­skipið Ocean Viking var 11 daga gam­alt og tók Brynja Dögg Frið­riks­dóttir, sendi­full­trúi Rauða kross­ins, þátt í björg­un­inni. Á sama tíma er andúð almenn­ings og stjórn­valda í Evrópu gagn­vart flótta­fólki að aukast, segir Þórir Guð­munds­son sem starf­aði fyrir Rauða kross­inn um ára­bil, meðal ann­ars við að bjarga flótta­fólki á Mið­jarð­ar­hafi.
Hörður „gengst við því“ að vera sá sem misnotaði yfirburðarstöðu sína gagnvart Jódísi
Fréttir

Hörður „gengst við því“ að vera sá sem mis­not­aði yfir­burð­ar­stöðu sína gagn­vart Jódísi

Hörður J. Odd­fríð­ar­son, dag­skrár­stjóri göngu­deildar SÁÁ á Akureyri, segir í sam­tali við Stundina að hann gang­ist við því að vera mað­ur­inn sem mis­not­aði yfir­burð­ar­stöðu sína gagn­vart Jódísi Skúla­dóttur þing­konu Vinstri grænna. Hörður er kom­inn í leyfi frá störfum hjá SÁÁ og hefur í dag sagt sig frá ýmsum starfs­skyldum, meðal ann­ars sem for­maður full­trúa­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar. Þá hefur hann sagt sig úr stjórn Sund­sam­bands Íslands.

Mest lesið undanfarið ár