Náðu hreinum meirihluta með minnihluta atkvæða
Fréttir

Náðu hreinum meiri­hluta með minni­hluta atkvæða

Fjórir listar fengu undir helm­ing atkvæða í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en náðu engu að síður hreinum meiri­hluta full­trúa. Reiknireglan sem notuð er við úthlutun sæta hyglir stórum flokkum á kostnað minni. Flokkar sem í sögu­legu sam­hengi hafa verið stórir, eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hafa lagst gegn því að önnur regla sem skila myndi lýð­ræð­is­legri nið­ur­stöðu verði tekin upp.
Hergagnaflug fyrir 125 milljónir
FréttirÚkraínustríðið

Her­gagna­flug fyrir 125 millj­ónir

Íslensk stjórn­völd hafa frá því í lok febr­úar greitt 125 millj­ónir króna fyrir her­gagna­flutn­ing. Stærstur hluti greiðsl­unnar hefur farið til flug­fé­lags­ins Bláfugls. Hluthafi í móð­ur­fé­lagi þess og her­mála­full­trúi Íslands hjá NATO hefur haft milli­göngu um við­skiptin. Tvær flug­vélar rúss­neska rík­is­ins eru skráðar á íslenska loft­fara­skrá. Bláfugl leigði vél­arnar stuttu fyrir inn­rás­ina í Úkraínu en varð að skila þeim vegna við­skipta­banns gegn Rússum.
Starfsmönnum Arctic Fish sagt frá samruna við Arnarlax: „No comment“
FréttirLaxeldi

Starfs­mönnum Arctic Fish sagt frá sam­runa við Arnarlax: „No comment“

Stjórn­endum lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish á Ísafirði var sagt frá því fyrir helgi að til standi að sam­eina fyr­ir­tækið og Arnarlax á Bíldudal. Á mánu­dag­inn var greint frá kaupum norsks móð­ur­fé­lags Arnarlax, Salmar, á eig­anda Arctic Fish, Norway Royal Salmon. Talað var um mögu­leik­ann á sam­legð­ar­á­hrifum í rekstri fyr­ir­tækj­anna tveggja og er ljóst að þessi fyr­ir­tæki verða í fram­tíð­inni rekin undir einum hatti.
Félag Samherja sem átti útgerðina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi
FréttirSamherjamálið

Félag Samherja sem átti útgerð­ina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi

Eign­ar­halds­fé­lagið sem Samherji not­aði til að halda utan um rekstur sinn í Namibíu seldi fisk­veiði­kvóta sinn á Íslandi til íslensks dótt­ur­fé­lags Samherja árið 2020. Þetta fyr­ir­tæki, Sæból fjár­fest­ing­ar­fé­lag, var í 28. sæti yfir stærstu kvóta­eig­endur á Íslandi um vorið 2019. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram hvernig reynt hefur verið að skera á tengsl þess við Ísland í kjöl­far Namib­íu­máls­ins.
Alvotech leigir fasteignir af félögum stofnanda síns fyrir rúmlega 1.700 milljónir
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech leigir fast­eignir af félögum stofn­anda síns fyrir rúm­lega 1.700 millj­ónir

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech, sem *Róbert Wessman stofn­aði, leigir fjölda fast­eigna af fyr­ir­tækjum hans vegna rekstr­ar­ins á Íslandi. Fyr­ir­tækið stefnir á skrán­ingu á hluta­bréfa­markað í Banda­ríkj­unum og hefur einnig fengið fjár­mögnun frá íslenskum aðilum og líf­eyr­is­sjóði.
Einn laxeldisrisi verður til á Vestfjörðum: Eigendur Arnarlax og Arctic Fish sameinast
FréttirLaxeldi

Einn lax­eld­is­risi verður til á Vest­fjörðum: Eigendur Arnarlax og Arctic Fish sam­ein­ast

Norskur eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíludal ætlar að kaupa eig­anda Arctic Fish á Ísafirði. Fyrir vikið verða tvö stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands í eigu sama norska fyr­ir­tæk­is­ins. Í til­kynn­ingu um sam­run­ann kemur fram að sam­legð­ar­á­hrif í rekstri fyr­ir­tækj­anna náist með þessu. Sam­an­lagt fram­leiða þessi fyr­ir­tæki rúman helm­ing af öllum eld­is­laxi í sjó á Íslandi.
Ísland tekur þátt í hernaði: Flytur og hýsir vopn og framleiðir hráefni
Erlent

Ísland tekur þátt í hern­aði: Flytur og hýsir vopn og fram­leiðir hrá­efni

Ísland er oft kallað her­laust land en á þó aðild að hern­að­ar­banda­lagi og tekur með óbeinum hætti þátt í átökum í Úkraínu og víðar. Íslensk stjórn­völd hafa borgað meira en hund­rað og tutt­ugu millj­ónir til að flytja her­gögn til þessa eina lands og ál frá Íslandi er nán­ast örugg­lega notað til að fram­leiða her­þotur, flug­skeyti og aðrar sprengjur sem bæði Rússar og Úkra­ínu­menn nota.
Nafn fasteignafélags ráðherra vísaði alltaf til lóðarinnar
FréttirFasteignaveðmál dómsmálaráðherra

Nafn fast­eigna­fé­lags ráð­herra vís­aði alltaf til lóð­ar­innar

Félagið sem Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra stofn­aði ásamt eig­in­konu sinni fékk strax nafn sem vísar til stað­setn­ingar lóðar sem síðar var keypt. Í svörum ráð­herr­ans og nýs stjórn­ar­for­manns félags­ins var gefið í skyn að félagið hafi ekki verið stofnað í þeim til­gangi að kaupa lóð­ina. Öll gögn um starf­semi félags­ins gefa annað til kynna.
„Það er ekki ég sem er að senda fólk til helvítis hér, það er ríkisstjórn Íslands sem er að því“
Fréttir

„Það er ekki ég sem er að senda fólk til hel­vítis hér, það er rík­is­stjórn Íslands sem er að því“

Davíð Þór Jónsson, prestur í Laug­ar­nes­kirkju, sagði í við­tali í morgun að hann hefði notað orðið „fas­ista­stjórn VG“ um rík­is­stjórn­ina vegna þess að sú póli­tík sem stjórnin ástund­aði væri fasísk. Hann sagði einnig að orða­lag hans um að það væri „sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og veg­tyllur“ hefði verið orða­til­tæki og sér­stakt ólæsi á tungu­málið þyrfti til að leggja þann skiln­ing í þau orð að með þeim óskaði hann fólki hel­vít­is­vistar.
Missti leiguíbúðina við brunann
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­í­búð­ina við brun­ann

Sögu Nazari dreymir um að eign­ast íbúð en er að eigin sögn föst á óör­uggum leigu­mark­aði þar sem leigu­verð sé óbæri­lega hátt og lífs­gæði leigj­enda mun lak­ari en flestra íbúða­eig­enda, aðeins ungt fólk sem eigi efn­aða for­eldra geti keypt íbúð. Saga er nú í end­ur­hæf­ingu, meðal ann­ars vegna áfalls sem hún varð fyrir í sept­em­ber í fyrra en þá kvikn­aði í íbúð sem hún leigði.
„Nakið fólk út um allt og það er verið að góla og öskra“
Fréttir

„Nakið fólk út um allt og það er verið að góla og öskra“

Sú starf­semi sem rekin er af and­legum söfn­uði sem kallar sig Sól­setrið, undir Esjurótum, er barna­vernd­ar­mál segir Tanya Pollock í nýjum þætti af Eigin konur. Hún segir að mikið marka­leysi sé í við­burðum safn­að­ar­ins og fólk sé sett undir mik­inn þrýst­ing til að taka þátt í athöfnum sem það síðan upp­lifir sem brot gegn sér. Sjálf hefur hún upp­lifað það sem hún telur hót­anir frá fólki sem teng­ist söfn­uð­inum eftir að hafa vakið athygli á því sem hún telur óeðli­legt og jafn­vel hættu­legt í starf­semi safn­að­ar­ins, sem hún líkir við költ.
Ráðherra segir leigumarkaðinn „óstöðugan og óáreiðanlegan“
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­mark­að­inn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráð­herrar og þing­menn segja leigu­mark­að­inn á Íslandi óör­uggan. „Mis­kunn­ar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. For­sæt­is­ráð­herra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglu­lega meðan hún var leigj­andi og mat­væla­ráð­herra segir leigu­mark­að­inn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyld­unnar.

Mest lesið undanfarið ár