Náðu hreinum meirihluta með minnihluta atkvæða

Fjórir listar fengu undir helm­ing atkvæða í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum en náðu engu að síður hreinum meiri­hluta full­trúa. Reiknireglan sem notuð er við úthlutun sæta hyglir stórum flokkum á kostnað minni. Flokkar sem í sögu­legu sam­hengi hafa verið stórir, eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hafa lagst gegn því að önnur regla sem skila myndi lýð­ræð­is­legri nið­ur­stöðu verði tekin upp.

Náðu hreinum meirihluta með minnihluta atkvæða
Kerfið gagn­ast Sjálf­stæðs­flokknum D'Hondt reiknireglan hefur gagn­ast Sjálf­stæð­is­flokknum, flokki Bjarna Bene­dikts­sonar sem hér sést greiða atkvæði, vel enda hefur flokk­ur­inn lagst gegn því að önnur regla verði tekin upp. Mynd: Pressphotos

Minni­hluti atkvæða kjós­enda skil­aði fjórum fram­boðum hreinum meiri­hluta full­trúa í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 14. maí síð­ast­lið­inn. Sú reikniregla sem stuðst er við til að ákveða fjölda full­trúa, d‘Hondt reglan, hyglir stærri fram­boðum á kostnað þeirra sem minni eru. Til er reikniregla sem jafnar þann mun, sem meðal ann­ars er beitt í Skand­in­avíu. Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor bendir á að á 64 ára tíma­bili, frá 1930 til 1994, hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík í fimm­gang fengið hreinan meiri­hluta í Reykja­vík með minni­hluta atkvæða í krafti d‘Hondt regl­unnar þegar önnur reikniregla hefði ekki skilað sömu nið­ur­stöðu.

Sé rýnt í úrslit kosn­ing­anna um miðjan mán­uð­inn má sjá að beit­ing d‘Hondt reikni­regl­unnar hefur þar haft veru­leg áhrif. Sem fyrr segir náðu fram­boð hreinum meiri­hluta í fjórum sveit­ar­fé­lögum út á minni­hluta atkvæða. Í Árborg hlaut Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hreinan meir­hluta en hlaut 46,4 pró­sent atkvæða. Flokk­ur­inn fékk sex sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa kjörna en atkvæða­fjöldi hans hefði í raun aðeins átt að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Ef ekki er notuð þessi regla í Danmörku þá erfðum við hana ekki frá dönum .
    Hvaða kosinn leiðtogi ákvað að breyta? Og hvaða ár?
    Var það kannski embættismaður sem smeigði því inn?
    Ef að ekki hefur verið kosið um reiknireglur af almenningi er hún framkvæmd án lagaheimildar
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár