Hergagnaflug fyrir 125 milljónir

Íslensk stjórn­völd hafa frá því í lok febr­úar greitt 125 millj­ónir króna fyrir her­gagna­flutn­ing. Stærstur hluti greiðsl­unnar hefur farið til flug­fé­lags­ins Bláfugls. Hluthafi í móð­ur­fé­lagi þess og her­mála­full­trúi Íslands hjá NATO hefur haft milli­göngu um við­skiptin. Tvær flug­vélar rúss­neska rík­is­ins eru skráðar á íslenska loft­fara­skrá. Bláfugl leigði vél­arnar stuttu fyrir inn­rás­ina í Úkraínu en varð að skila þeim vegna við­skipta­banns gegn Rússum.

Hergagnaflug fyrir 125 milljónir

Utan­rík­is­ráð­herra hafði í þrí­gang óskað eftir fresti til að svara fyr­ir­spurn Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um her­gagna­flutn­inga íslenskra stjórn­valda til Úkraínu. Svarið barst loks í vik­unni án þess þó að það varp­aði frekara ljósi á umfang, tíðni eða hvað hefði verið flutt af her­gögnum. Hins vegar svar­aði utan­rík­is­ráð­herra spurn­ingu um heild­ar­kostnað við flugið.

Rósa BjörkSpurði utan­rík­is­ráð­herra um her­gagna­flutn­inga íslenskra stjórn­valda til Úkraínu.

„Um miðjan maí 2022 hafði íslenska ríkið greitt rúm­lega 125 millj. kr. fyrir flutn­ing á bún­aði, fyrst og fremst her­gögnum, til notk­unar í Úkraínu,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Um það hvers kyns her­gögn hafi verið flutt segir að „fyrst og fremst hafi verið um að ræða skot­færi, en einnig annan búnað,“ en vísað er til þess að trún­aður ríki um nákvæma farm­skrá með vísan til ákvæða upp­lýs­inga­laga um sam­skipti við erlend ríki eða fjöl­þjóða­stofn­anir.

…
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár