Eins og að fara í tíma­ferða­lag Sigurður Helgi segir að það að fá í hend­urnar sjald­gæfa gripi, með sögu, sé það næsta sem hægt sé að kom­ast því að fara í tíma­ferða­lag. Það sé það sem alltaf hafi heillað hann við söfnun. Mynd: Davíð Þór

Gekk slyppur og snauður en brosandi út úr búðinni sinni

Sigurður Helgi Pálmason fékk söfn­un­ar­bakt­er­í­una ell­efu ára gam­all og gekk í Myntsafn­ara­fé­lagið. Þar var hann hvað yngstur með­lima, ald­ar­fjórð­ungi yngri en næstu menn. Hann rak safn­ara­búð á gleð­inni einni saman og ætlar nú að fræða sjón­varps­á­horf­endur um gamla muni.

Sigurður Helgi Pálmason telst lík­lega ekki vera hin dæmi­gerða erkitýpa safn­ar­ans, það er að segja ef fólk sam­þykkir að slík týpa sé til, sem er kannski vafa­samt. Engu að síður hitti söfn­un­ar­bakt­er­ían Sigurð Helga fyrir strax á unga aldri og nú, á fimm­tugs­aldri, hefur hann hellt sér út í söfnun, verið einn yngsti með­limur Myntsafn­ara­fé­lags Íslands frá upp­hafi, hætt að safna, byrjað aftur, rekið safn­ara­búð meira af ástríðu en fjár­hags­legri skyn­semi og stýrir nú Myntsafni Seðla­banka Íslands. Þá hefur hann und­an­farin ár unnið að sjón­varps­þætti um söfnun og safn­ara ásamt Viktoríu Her­manns­dóttur fjöl­miðla­konu og hefja þætt­irnir, Fyrir alla muni, göngu sína næst­kom­andi sunnu­dags­kvöld.

„Hug­myndin kvikn­aði í búð­inni minni hérna uppi á Hverf­is­götu. Jón Þór Hann­es­son, sem er einn stofn­enda Sagafilm, kom til mín í búð­ina og við fórum að spjalla. Ég komst þá að því að hann hafði tekið upp plötu með mömmu og pabba og með því náðum við teng­ingu. Við förum að ræða saman og hann kemur í nokkur skipti í búð­ina og ég fer að velta því upp að það væri gaman að gera sjón­varps­þætti. Það hefur ekki áður verið gert hér á landi en svona þættir eru býsna vin­sælir víða erlendis. Það eru þrjú ár síðan við fórum af stað með þetta verk­efni og upp­tökur fóru fram í fyrra­sumar. Í raun og veru erum við bara að gera það sem mér þykir svo gaman, að fá í hend­urnar hlut sem ein­hver saga fylgir. Við segjum síðan þá sögu og reynum að sanna að hún sé rétt. Það eru svo alls konar hlutir sem koma upp úr dúrnum og það er það sem er svo skemmti­legt við að vera safn­ari. Á bak við alla litla hluti eru sögur, réttar eða rangar. Ef ein­hver mun koma og segja okkur að við höfum rangt fyrir okkur í þátt­unum munum við taka því fagn­andi,“ segir Sigurður Helgi.

Fyrir alla muniÞau Viktoría og Sigurður Helgi ætla að kanna sögu alls konar muna í sjón­varp­inu í vetur.

Hætti að safna í tuttugu ár

Sigurður Helgi byrj­aði ungur að safna mynt, ekki nema ell­efu ára gam­all. „Ég man vel þegar það byrj­aði, það var þegar ég rakst á gamla pen­inga­skáp­inn hans afa og opn­aði hann. Þar var fullt af gömlum pen­ingum sem kveiktu í mér for­vitn­ina. Hvað eru þeir gamlir, frá hvaða landi eru þeir og svo fram­vegis. Þarna var auð­vitað ekk­ert net og maður þurfti að leita upp­lýs­inga. Þá gekk ég í  Myntsafn­ara­fé­lag Íslands og ég held að sá næsti mér í aldri hafi verið 35 til 40 ára.“

„Það þarf nán­ast að vera eitt­hvað að þér ef þú opnar safn­ara­búð árið 2013“

Sigurður Helgi seg­ist hafa misst söfn­un­ar­árátt­una niður á ung­lings­ár­unum, það sé raunar mjög algengt. Önnur áhuga­mál taki þá yfir. Áhuginn kvikn­aði hins vegar aftur árið 2008. „Þetta var á sunnu­degi og mér leidd­ist eitt­hvað. Ég hafði alltaf fengið boð um að koma á fundi hjá Myntsafn­ara­fé­lag­inu þótt ég væri hættur. Þarna mætti ég loks og fæ strax svona brjál­aðan áhuga aftur. Þá voru liðin tutt­ugu ár. Þetta er mjög algengt, fólk byrjar ungt en missir svo áhug­ann. Svo um fer­tugt, fimm­tugt þá kemur áhug­inn aftur. Ég held að það sé kannski vegna þess að þá mynd­ast aftur tími til að sinna áhuga­mál­inu.“

Sigurður Helgi fór þá aftur að safna, skipta við aðra safn­ara og kaupa muni. Árið 2013 steig hann síðan annað skref þegar hann opn­aði Safn­ara­mið­stöð­ina á Hverf­is­götu. „Það þarf nán­ast að vera eitt­hvað að þér ef þú opnar safn­ara­búð árið 2013. Ég gerði það bara af hug­sjón og ég byrj­aði með ekk­ert í hönd­unum. Ég fékk í hend­urnar þetta ynd­is­lega pláss á Hverf­is­göt­unni og fór af stað. Ég setti allt sem ég átti inn í búð­ina, öll mín söfn, vegna þess að það gengur alls ekki að vera að keppa við kúnn­ana. Þá fer maður að meta hlut­ina öðru­vísi eða kaupa sjálfur upp alla bestu hlut­ina og þá kemur eng­inn að versla við mann.

Að reka þessa búð er það allra erf­ið­asta sem ég hef gert á ævinni en á sama tíma það allra skemmti­leg­asta. Það komu hlutir inn til mín sem ollu því að ég hrein­lega missti and­litið. Oftar en ekki vissi fólkið sjálft ekk­ert hvað það hafði í hönd­unum. Ég fékk meðal ann­ars inn í búð­ina mína stærsta safn sem tengd­ist íslenskum nas­istum og um það var fjallað í Kast­ljósi. Það spurð­ist hægt og rólega út að það væri hægt að koma til mín og biðja mig um álit og mat á hlutum. Það var það sem mér þótti kannski skemmti­leg­ast við rekst­ur­inn.“

Sér ekki eftir tím­anumSigurður Helgi segir að tím­inn sem hann rak Safn­ara­mið­stöð­ina hafi verið sá erf­ið­asti í lífi sínu en jafn­framt sá allra skemmti­leg­asti.

Erfitt en gaman

Sigurður Helgi rak Safn­ara­mið­stöð­ina um tveggja ára skeið, á árunum 2013 til 2015 en þá lauk þeim rekstri. „Þetta var fjár­hags­lega von­laust, það var ekki séns að þetta væri hægt,“ segir Sigurður Helgi glott­andi. Hann bætir við að hann hafi í upp­hafi hugsað sér að sam­tvinna rekstur safn­ara­búðar og túrista­búðar en á þeim tíma sem hann hóf versl­un­ar­rekstur hafi húsa­leiga á Lauga­vegi og á bestu stöðum verið orðin það há að það hafi ekki verið raun­hæft. „Ég labb­aði út úr búð­inni slyppur og snauður en samt bros­andi. Þetta var ótrú­legt tíma­bil og þó að það hafi verið erfitt þá mun ég aldrei sjá eftir þessum tíma.“

„Ég fer í vinn­una bros­andi á hverjum degi og kem bros­andi hvern dag heim“

Sigurður Helgi starfar í dag sem safn­vörður myntsafns Seðla­banka Íslands og Þjóð­minja­safns­ins. „Það er algjör draumur fyrir mann eins og mig. Ég fer í vinn­una bros­andi á hverjum degi og kem bros­andi hvern dag heim. Fyrir mér er þetta, að höndla með gamla muni, það næsta því sem hægt er að kom­ast í tíma­vél. Ef þú færð í hend­urnar hlut með ein­hverja sér­staka sögu ertu nálægt því að kom­ast aftur til þess tíma þegar sú saga gerð­ist, eða það hefur alltaf verið mín til­finn­ing. Aftur á móti get ég rétt ein­hverjum öðrum hlut­inn og hann hefur engan áhuga á þeirri sögu en í stað þess getur við­kom­andi til dæmis séð feg­urð­ina í hlutnum, nú eða nota­gildið. Það er það sem er svo skemmti­legt.“

Áhyggjur af því að verið sé að henda sögunni

Sigurður Helgi segir að hann hafi af því tölu­verðar áhyggjur að munir og saga tap­ist því verð­mæta­mat fólks breyt­ist hratt og það sem fólk kunni að meta í eina tíð sé öðrum í dag lít­ils virði. „Ég hef mestar áhyggjur af því hverju verið er að henda. Fólk sem kemur kannski að dán­ar­búum og því fall­ast bara hendur því það veit ekk­ert hvað það er með í hönd­unum. Dæmi um þetta eru kannski filmu­ljós­mynda­vélar, sem fólk notar nú ekki mikið í dag. Það eru hins vegar til rán­dýrar vélar og linsur þarna úti sem ljós­mynd­arar sækj­ast eftir, það er til fólk sem myndi næstum því drepa fyrir Leica-linsur til dæmis. Ég hef lent í því að hafa stoppað það af að rán­dýrar Leica-linsur væru sendar á haug­ana,“ segir Sigurður Helgi og leggur áherslu á mik­il­vægi þess að fólk leiti sér aðstoðar ef það telur að það hafi í hönd­unum gamla, merki­lega eða verð­mæta muni. Þjóð­minja­safnið sé meðal ann­ars upp­fullt af fræða­fólki sem hafi þekk­ingu á þessum málum.

„Ég er hins vegar ekki mað­ur­inn til að spjalla við í veislum“

Sigurður Helgi seg­ist ekki vera far­inn að safna sjálfur aftur, eftir að búð­ar­rekst­ur­inn rann sitt skeið. Hann rækti hins vegar áhuga­málið með sér. „Ég fer reglu­lega í Kola­portið, á flóa­mark­aði, ég mæti á fundi hjá Myntsafn­ara­fé­lag­inu og er í sam­skiptum við fólk um allan heim um söfnun. Ég er hins vegar ekki mað­ur­inn til að spjalla við í veislum, þegar ég er spurður hvað ég geri og seg­ist vera mynt­fræð­ingur þá fer fólk bara að horfa út í loftið og tala um veðrið.“

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár