Hamingjan er hringrás

„Ég myndi aldrei óska nokkrum manni að vera ham­ingju­samur til enda­loka. Það er að segja að upp­lifa bara ham­ingju. Það að vera mann­eskja er miklu, miklu stærra en það,“ skrifar rit­höf­und­ur­inn Ragn­heiður Harpa Leifs­dóttir.

Hamingjan er hringrás

Á fyrstu dögum vetrar er kald­ast. Við klæðum okkur í leð­ur­jakk­ann eða haust­frakk­ann á leið út. Bölvum því að gleyma húf­unni heima þegar við bíðum eftir strætó á Hofs­valla­götu. Það er aldrei eins kalt og á haustin, sagði pabbi við mig ein­hvern tím­ann og ég tek undir þetta með honum. Við mann­fólkið erum gleymin. Við gleymum því hvernig það er að vera ekki með kvef þegar við snýtum okkur í tíunda skiptið þennan til­tekna haust­morgun. Á hverju sumri, hverjum vetri kemur birtan og mykrið okkur á óvart. Er dimman skollin á? Það tekur tíma, stundum fáeina daga, til að venj­ast kerta­ljósi á kvöldin og þétt­ofnum ull­ar­treflum, til að aðlag­ast tíð­inni. 

Þessi hringrás er um leið festan í kaósnum. Við vitum að það kemur haust, vetur, vor og sumar. Eins eru sögur leið okkar til að teikna ósýni­legar línur í loft­inu og þræða skiln­ing á festi í óreið­unni sem lífið er. Sólin kemur upp á morgn­ana og hún hverfur bak­við fjöllin á kvöldin. Þetta vitum við þótt við vitum kannski ekk­ert annað. Hlátra­sköllin í spör­fugl­unum kalla á að vet­ur­inn sé að nálg­ast þegar trén svigna undir rauðu berj­unum og kuld­inn á vinstri kinn í norð­an­átt­inni er vísir um að norð­ur­ljós gætu sést þessa nótt. Ham­ingjan er eins. Hún verður ekki til í ein­rúmi og hún er ekki eins­leit, heldur á stöðugri hreyf­ingu eins og stjörn­u­rnar sem ferð­ast frá okkur, vatnið undir hraun­inu og vind­ur­inn sem er aldrei ákveð­inn í hvaða átt hann stefnir. Ham­ingjan er jafn­væg­is­leit, perlur í gömlu háls­meni, órök­réttar sigl­inga­leiðir um nýjar en kunn­ug­legar lendur.

Of mikil áhersla á hamingjuna

Mér finnst of mikil áhersla á ham­ingj­una í kringum okkur. Að við eigum alltaf að vera ham­ingju­söm. Ég myndi aldrei óska nokkrum manni að vera ham­ingju­samur til enda­loka. Það er að segja að upp­lifa bara ham­ingju. Það að vera mann­eskja er miklu, miklu stærra en það. Við búum yfir lit­rófi til­finn­inga sem spanna sér­tæk­ustu liti jarðar: djúp­mosa­grænan og föl­bleikan (eins og havaírós ömmu þinnar), blá­bjartan sem sést aðeins á jan­ú­ar­morgnum og dimmrauðan, eins og kok katt­ar­dýrs. Allt frá fæð­ingu erum við að kanna þessar til­finn­ingar, þetta dýpi sem það er að vera mann­legur og tengj­ast öðrum. Við fetum ham­ingju­ríkar stundir, missi, þrautir og raunir og allt þetta færir okkur betri þekk­ingu á okkur sjálfum og umheim­inum okkar. Við getum aðeins óskað okkur far­sælt vega­nesti. Traust og teng­ingu. Að þekkja okkur sjálf og vita hvað veitir okkur sjálfum styrk. Það getur verið svo ein­stak­lings­bundið því öll erum við ólík.

Þegar ham­ingjan er dul­búin á hátt sem gefur til kynna að þú verður að öðl­ast hana er það vara­söm tál­sýn. Hún birt­ist í aug­lýs­ingu um nýjan bíl eða sund­fata­línu. Mark­aðs­öflin lokka þig til sín með því að reyna að telja þér trú um að þú getir ekki verið ham­ingju­söm án þess að eign­ast gráan sófa eða verið með nokk­urra senti­metra mitt­is­línu. Við sjáum þetta líka á sam­fé­lags­miðlum, þegar öll skjá­skot af lífi ein­hvers eru ham­ingjan ein. Og allt í einu bliknar hvers­dags­leik­inn í sam­an­burði við ein­staka móment sem við vitum samt ekk­ert hvernig var. Þegar ham­ingjan er notuð sem sölu­vara gleym­ist það að hún er til innra með okkur og verður alltaf til þar. 

Sagan af manninum í fjörunni

Einu sinni heyrði ég sögu af manni sem taldi að fjaran væri gjöf­ul­leg­asti stað­ur­inn. Þú stendur í fjör­unni og finnur sand­inn undir fótum þínum, lykt­ina af þangi, þara og saltið í sjónum á tungu þinni. Fyrir framan þig er hyl­dýpið: Hið ókann­aða, djúp fullt af ófreskjum og sögum. Hyldýpið færir þér dýr­mætar gjafir og þekk­ingu en far­irðu of langt er hætta á að þú sökkvir og náir ekki aftur í land. Ef þú ferð of langt upp á land gleym­irðu fjör­unni, þang­inu og djúp­inu. Þá missir þú þennan hluta af þér sem er þér algjör­lega lífs­nauð­syn­legur. Þessi saga hverf­ist um und­ir­með­vit­und­ina og er gjarnan notuð þegar talað er um ímynd­un­ar­aflið og sköp­un­ar­kraft­inn. 

„Hvar er fjaran þegar við erum heima hjá okkur að sjóða pasta?“

En hvernig pössum við upp á þetta brot­hætta jafn­vægi? Hvar er fjaran þegar við erum heima hjá okkur að sjóða pasta? Ég get auð­vitað aðeins talað út frá sjálfri mér. Það sem færir mér ham­ingj­una eru stund­irnar sem verða til með fólk­inu í kringum mig. 

Að muna eftir  moldinni

Að rækta garð­inn sinn, sjálfan sig. Þetta hug­tak er svo sér­stakt. Ég fer að hugsa um stofu­blómin okkar með upp­runa í eyði­mörk­inni sem finna norð­an­kuld­ann við glugga­kist­una og hita streyma frá ofn­inum fyrir neðan þau. Svo fal­lega absúrd eins og mér líður oft, í alls konar aðstæðum og það er gíf­ur­leg póesía í fárán­leik­anum. Og fyrst við erum komin þangað má alveg eins tala um mold­ina okkar, og mik­il­vægi þess að vökva og hlúa að gróðr­inum sem býr fyrir innan og utan. Sjálf geri ég það með sund­ferðum, mat­ar­boðum með vinum, sam­tölum, söng. Ég nýt þess að njóta lista, ganga í alls konar veðrum og fara út á land. Að koma verk­efnum mínum í far­veg er mik­il­vægt fyrir mér en um leið slaka á. Ég þarf að vera í skýrum og heið­ar­legum sam­skiptum og finna fyrir ein­hverju sam­hengi. En fyrst þarf grunn­ur­inn að vera í lagi: vera við góða heilsu, búa við öryggi í heim­ili og frið­sæld í landi og eiga í kær­leiks­ríkum sam­böndum. Til­hlökkun skiptir mig líka máli, að geta hlakkað til ein­hvers sem fram undan er. Og þakk­læti, það er hin eig­in­lega kvöld­bæn. Þetta eru þau atriði sem skipta mig máli og feg­urðin í þessu er að við erum öll ólík. Þetta finn ég að gefur mér fót­festu til að standa í fjör­unni og kanna djúpið án þess að fara of langt. 

„Þakklæti, það er hin eig­in­lega kvöld­bæn“

Að sættast við svikarann 

Svo er ég hluti af ljóða­kollek­tívi sem kallar sig Svika­skáld. Við sam­ein­uð­umst undir þeim for­merkjum að segja upp eitr­uðu sam­bandi við svik­ar­ann. Fyrsta bók okkar fjall­aði um þetta efni: að líða eins og ein­hvern tím­ann hljóti að kom­ast upp um að þú vitir ekk­ert hvað þú ert að gera. Svik­ar­inn hvíslar í eyrað þitt að þú sért alveg glötuð og eigir ekk­ert erindi. Við þekkjum hann öll og til­finn­ingin hefur ýmis nöfn. Það stór­kost­lega við þessa til­finn­ingu er að hún er ofboðs­lega sammann­leg því það veit í raun eng­inn hvað hann eða hún er að gera. Við erum flest að gera okkar besta. Svik­ar­inn sem situr á öxl­inni getur tekið á sig ýmsar myndir fái hann að ráða, þró­ast í kvíða eða ofboðs­leg þyngsl. Við æfum okkur í að bjóða honum til borðs: Vel­kom­inn, kæri svik­ari, sestu hér og fáðu þér vatns­l­gas, kaffi eða krem­kex. Í stað þess að afneita honum tökum við fagn­andi á móti honum því hann er hluti af okkur sjálfum. Stundum er hann hamlandi, dríf­andi eða hrein­lega ekki neitt, sötrar kaffið sitt og fer svo í göngutúr. Við gáfum út þriðju bók­ina okkar í haust, Nú sker ég netin mín. Yrk­is­efnin okkar hafa þró­ast og vaxið og við höldum áfram að skrifa og styðja hver aðra. Ég finn að þessi sam­taka­máttur og kraftur kollek­tí­vís­ins, sem hífur eina upp stökkvi hún frá borði vegna sjálfs­efa, hefur hjálpað mér til muna, til að mæta svik­ar­anum en um leið halda áfram að skrifa og geta vaxið saman í því. Í nóv­em­ber kemur út mín fyrsta ljóða­bók, Sítrónur og nátt­myrkur. Bók sem ég hef ekki þorað að senda frá mér fyrr en nú.

„Bók sem ég hef ekki þorað að senda frá mér fyrr en nú“

Um leið er efinn nauð­syn­legur í allri sköpun, og af því ég trúi því að allir séu lista­menn á sinn hátt, skapi, hvort sem það er að útbúa góm­sæta kvöld­mál­tíð, prjóna peysu handa barna­barni eða hlúa að und­ur­fal­legum frá­gangi við bíla­sprautun, þá getur efinn verið okkur svo dýmætur. Hann má ekki taka yfir eða hverfa alveg heldur er þetta eins konar dans. Við skipt­umst á spori, teljum einn, tveir, þrír. Hinn tekur við. Hlustum eftir trommuslætt­inum og loka­takt­inum í Abba-lag­inu. 

Að finna drifkraft í voninni

En hvernig höldum við í jafn­vægið þegar dyrnar virð­ast vera að lok­ast? Nú stöndum við and­spænis lofts­lagsvá sem mun koma til með að snerta alla sem við elskum. Við stöndum frammi fyrir stórum breyt­ingum, fyrir bar­áttum um verndun nátt­úr­unnar, umskiptum á hugs­un­ar­gangi og lífs­venjum. Í þeirri bar­áttu er vonin bæði lyk­ill og lykla­beri í myrkv­uðu her­bergi því í henni felst drif­kraftur til að taka á móti og hrinda af stað. Von er drif­kraftur sem stendur and­spænis stöðn­un­inni. Til þess að við getum verið á þessum stað, til­búin að taka á móti og standa í fæt­urna er mik­il­vægt að við hlúum að okkur um leið og gerum það sem veitir okkur þetta brot­hætta jafn­vægi til að stíga öld­una, taka dans­inn og grafa tærnar (alls ekki höf­uðið) ofan í sand­inn. 

Að sjá eldhnetti í dúnúlpum

Á fyrstu dögum vetrar smýgur kuld­inn í gegnum allar dún­úlpur og upp­hit­aða bíla. Hann læð­ist með­fram húsum eins og jóla­sveinn af gamla skól­anum, til­bú­inn að hrekkja veg­far­anda með ísköldum blæstri beint í and­litið. Muniði eftir sög­unni af sól­inni og … var það vind­ur­inn? Sagan er óljós minn­ing úr æsku þegar sólin og ský eiga í keppni að fá mann sem gengur í skógi til að fara úr frakk­anum. Vind­ur­inn blæs og blæs og mað­ur­inn vefur jakk­anum þéttar að sér á meðan sólin sendir aðeins geisla sína til hans. Hann fer þá auð­vitað úr jakk­anum. Nú þegar sólin kveður norð­an­hvel jarðar í bili þá minnum við okkur á að við erum sólir í lífum hvert ann­ars og okkar eigin. Það er for­vitni­leg mynd að sjá fyrir sér eld­hnetti ganga niður Skóla­vörðu­stíg í kulda­skóm eða borða popp í bíó. En þannig er það samt. Eld­hnettir í dún­úlpum sem muna eftir trefl­unum, veita hver öðrum yl, kær­leik og kerta­ljós í kom­andi stormum, norð­an­hríð og blá­björtum jan­ú­ar­morgnum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár