Roald Amundsen: Pólfarinn sem hvarf

Ráðgátan um raunir Roalds Amundsen lifir enn. Hann átti sér þann draum að enda lífið á ísnum. Ný kvik­mynd varpar ljósi á líf hans.

Roald Amundsen: Pólfarinn sem hvarf
Roald Amundsen Sveip­aður skinn­klæðum. Mynd: Wikipedia

Sigl­inga­leiðir ku vera að opn­ast með­fram norð­ur­skaut­inu bæði austan og vest­an­megin við Ísland sem kallar á afskipti stór­veld­anna. En ekki eru nema rétt rúm 100 ár síðan menn gerðu fyrstu til­raunir til að sigla með­fram norð­ur­skaut­inu og kost­aði það mörg manns­líf. Sá sem átti hvað mestan þátt í að kanna þetta svæði var Norð­mað­ur­inn Roald Amundsen, sem ann­ars er helst þekktur fyrir ævin­týri sín á suð­ur­skaut­inu. En það var norð­ur­skautið sem á end­anum varð honum að ald­urtila.  

Flestir kann­ast lík­lega við sög­una af Amundsen og Scott og kapp­hlaupi þeirra um að verða fyrstur á suð­ur­pól­inn. Amundsen vann en Scott dó og varð við það enn meiri hetja, að minnsta kosti í Bret­landi. Færri vita ef til vill um það sem gerð­ist síðar, og hvernig Amundsen á sinn hátt sneri á Scott með and­láti sínu. 

Tak­mark­inu náðNorski fán­inn blaktir á suð­ur­skaut­inu.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár