Stígur fram sem fyrir­mynd en þol­endur eru enn í sárum

Engar reglur eru til um það hver fær að fara inn í grunn- og fram­halds­skóla með fræðslu fyrir ungt fólk. Nýlega hefur ungur maður farið inn í fram­halds­skóla með reynslu­sögu sína eftir aðeins þriggja mán­aða frá­hvarf frá fíkni­efna­neyslu. Talskona Rót­ar­innar segir það alvar­legan örygg­is­brest, Land­lækn­is­emb­ættið lýsir sömu áhyggjum og kallar eftir við­brögðum ráðu­neyt­is­ins. Þá hafa konur sem saka mann­inn um ofbeldi áhyggjur af því dag­skrár­valdi sem honum hefur verið veitt, í gegnum fræðslu­starfið og fjöl­miðla.

Stígur fram sem fyrir­mynd en þol­endur eru enn í sárum
Hlynur Kristinn Rún­ars­son Aðeins þremur mán­uðum eftir að hann hætti í harðri neyslu var hann far­inn að fara með fræðslu inn í fram­halds­skóla auk þess sem hann var í við­tölum við fjöl­miðla, meðal ann­ars á for­síðu Mannlífs, sem dreift er ókeypis í öll hús. Mynd: Mannlíf/Hákon Davíð Björnsson

Hlynur Kristinn Rún­ars­son var dæmdur í fimm ára fang­elsi fyrir fíkni­efna­smygl í Brasilíu árið 2016. Dómurinn var styttur á æðra dóm­stigi og eftir ár var Hlynur lát­inn laus. Hann hefur nú verið í frá­hvarfi frá fíkni­efnum í fjóra mán­uði, en ekki liðu nema tveir mán­uðir þar til hann hafði stofnað góð­gerð­ar­sam­tökin Það er von. Aðeins þremur mán­uðum eftir að hann hætti í harðri neyslu var hann far­inn að fara með fræðslu inn í fram­halds­skóla auk þess sem hann var í við­tölum við fjöl­miðla, meðal ann­ars á for­síðu Mannlífs, sem dreift er ókeypis í öll hús. Allt vekur þetta ugg í brjósti kvenna sem hafa verið í nánum sam­skiptum við Hlyn og vilja vara við því hvernig hann hefur gengið fram gagn­vart þeim. Hafa þær meðal ann­ars skjá­skot undir höndum þar sem Hlynur við­ur­kennir ofbeldi gagn­vart konum, talar um að hafa þurft að nán­ast nauðga konu í óráði til að fá …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár