Fjórir af eigendum KEA-hótela greiddu sér út 1800 milljónir króna árið 2017

Fjórir eig­endur KEA-hót­ela greiddu sér út 1800 millj­ónir króna árið 2017 eftir að hafa selt hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu. Þessi upp­hæð nemur rúm­lega 440 árs­launum á þeim taxta sem verka­lýðs­fé­lögin krefj­ast í yfir­stand­andi kjara­við­ræðum. KEA-hótel og Íslands­hótel hafa hagn­ast um millj­arða króna á liðnum árum.

Fjórir af eigendum KEA-hótela greiddu sér út 1800 milljónir króna árið 2017
Hafa hagn­ast vel Fimm ein­stak­lingar keyptu KEA-hótel árið 2012 og hafa síðan selt hluti í félag­inu tví­vegis, meðal ann­ars til Lands­bréfa en þessi mynd var tekin við það til­efni, og hagn­ast vel á við­skipt­unum. Fimm­menn­ing­arnir eru Andri Gunn­ars­son, Páll L. Sig­ur­jóns­son, Fannar Ólafsson, Kristján M. Grét­ars­son og Þórður Kol­beins­son en þeir fjórir fyrst­nefndu sjást hér á mynd með tveimur af for­svars­mönnum Lands­bréfa.

Upp­safn­aður hagn­aður tveggja íslenskra hót­el­keðja síð­ast­liðin sjö ár eru tæp­lega 3,4 og rúm­lega 2 millj­arðar króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í athugun Stund­ar­innar á árs­reikn­ingum stærstu hót­el­keðja Íslands sem og umsvifa­mestu rútu­bíla­fyr­ir­tækj­unum sem yfir­stand­andi verk­falls­hrinur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar ná til. Á árunum 2010 til 2017 nemur upp­safn­aður hagn­aður hót­el­keðj­unnar Íslands­hót­ela, sem meðal ann­ars rekur Grand Hótel og Foss­hót­elin, 3.373 millj­ónum króna, og hagn­aður KEA-hót­ela, sem meðal ann­ars rekur sam­nefnt hótel á Akureyri, nemur 2.005 millj­ónum króna. 

Þrátt fyrir mik­inn hagnað í hót­el­geir­anum hafa eig­endur hót­ela varað ein­dregið við launa­hækk­unum starfs­fólks. Verkföll meðal félags­manna VR og Eflingar ná til þess­ara tveggja hót­el­keðja meðal ann­arra.

Hvorki fram­kvæmda­stjóri KEA-hót­ela, Páll L. Sig­ur­jóns­son, né fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela, Davíð Torfi Ólafsson, hafa gefið Stund­inni færi á við­tölum þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár