Er þakk­lát og ham­ingju­söm Hanyie segir að síð­ustu níu mán­uði, frá því að hún og faðir hennar fengu hæli hér á landi, hafi líf hennar verið ótrú­lega gott. Mynd: Davíð Þór

Fékk áfall þegar keyrt var á hana á leið í skólann

Hanyie Maleki varð fyrir bíl á Hring­braut­inni í Vesturbæ Reykja­víkur á leið­inni í skól­ann fyrr í mán­uð­inum. Hún segir lífið hafa verið ótrú­lega gott síð­ustu mán­uði eftir að hún og faðir hennar fengu hæli hér á landi.

Að morgni 9. jan­úar síð­ast­lið­inn var ekið á stúlku sem var á leið yfir Hring­braut í Vesturbæ Reykja­víkur, á leið sinni í Haga­skóla. Fyrstu fréttir af slys­inu voru nokkuð óljósar, stúlkan var flutt á slysa­deild með sjúkra­bíl til skoð­unar en það tekið fram að talið væri að hún væri ekki mikið slösuð. Í kjöl­farið sköp­uð­ust mjög harðar umræður hjá íbúum í Vesturbæ um umferð­ar­ör­yggi við Hring­braut, sem meðal ann­ars ollu því að tekin var upp gang­braut­ar­varsla á göngu­ljós­unum sem stúlkan var á leið yfir.

Myndband og klipp­ing: Davíð Þór

En litlar fréttir bár­ust af líðan stúlkunnar sem keyrt var á og segja má að hún hafi kannski gleymst í kjöl­farið. Sem betur fer slas­að­ist hún þó ekki alvar­lega. Stúlkan sem um ræðir heitir Hanyie Maleki og hefur hún verið í kast­ljósi fjöl­miðla áður. Hún kom til Íslands ásamt föður sínum, Abrahim Maleki, í des­em­ber 2016 eftir að hafa lagt að baki hættu­lega og erf­iða ferð þar sem þau flúðu frá Íran og til Evrópu í gegnum Tyrkland. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár