Lýsa káfi skólameistarans á Ísafirði: „Þá stökk Jón Baldvin allsnakinn út í laugina“

Sigríður Hulda Richardsdóttir, sem var nem­andi í Mennta­skól­anum á Ísafirði þegar Jón Baldvin Hanni­bals­son var skóla­meist­ari, segir Jón Baldvin hafa káfað á sér í dimission ferð og elt uppi kven­kyns nem­endur sína. Frásögn hennar er studd þremur vitnum úr ferð­inni.

Lýsa káfi skólameistarans á Ísafirði: „Þá stökk Jón Baldvin allsnakinn út í laugina“
Dimission ferð Jón Baldvin Hanni­bals­son, annar frá vinstri, var skóla­meist­ari Mennta­skól­ans á Ísafirði frá 1970 til 1979.

Sigríður Hulda Richardsdóttir, sem var nem­andi í Mennta­skól­anum á Ísafirði í lok átt­unda ára­tug­ar­ins, segir Jón Baldvin Hanni­bals­son, þáver­andi skóla­meist­ara og síðar stjórn­mála­mann, hafa káfað á brjóst­unum á sér og áreitt nem­endur kyn­ferð­is­lega.

Sigríður Hulda Richardsdóttir

Hún segir atvikið hafa átt sér stað í dimission ferð skól­ans eftir að siglt hafði verið með nem­endur til Bol­ung­ar­víkur til að fara í sund. Þar hafi Jón Baldvin stokkið nak­inn út í laug­ina til nem­end­anna. „Þessi nakti maður kom synd­andi í átt­ina til okkar og við vorum allar í sjokki,“ segir Sigríður.

Í sam­tali við Stundina stað­festa þrjár skóla­systur Sigríðar atburði dags­ins eins og Sigríður lýsir þeim.

Aðspurður seg­ist Jón Baldvin ekki ætla að bregð­ast við frá­sögn­inni strax. „Ég ætla ekki að bregð­ast við þessu fyrr en síðar og þá vel ég tíma, stað og stund,“ segir hann.

Í blaði Stund­ar­innar sem kom út á föstu­dag lýsa fjórar konur kyn­ferð­is­legri áreitni af hendi Jóns Baldvins. Umfjöll­un­ina í heild má lesa í tölu­blað­inu. Þá steig mág­kona hans einnig fram í við­tali við Stundina á laug­ar­dag og sagði frá meintri áreitni hans.

Mikið fyllerí á kennurunum

Sigríður var nem­andi í Mennta­skól­anum á Ísafirði árin 1975 til 1979 og var Jón Baldvin skóla­meist­ari á þessum árum. Hann starf­aði sem kenn­ari og skóla­stjórn­andi í fjórtán ár, fyrst í Haga­skóla 1964 til 1970, og svo sem skóla­meist­ari á Ísafirði 1970 til 1979. Kvenkyns nem­endur úr Haga­skóla hafa einnig greint frá áreitni Jóns Baldvins í sam­tali við Stundina, sem þær segja hafa átt sér stað þegar þær voru þrettán til fjórtán ára gamlir nem­endur hans.

Vorið 1979 fór útskrift­ar­bekk­ur­inn Sigríðar í Mennta­skól­anum á Ísafirði í dimission ferð. „Ég hafði vænt­ingar um skemmti­legan dag, fjög­urra ára nám var að baki, upp­lestr­ar­frí framundan og eft­ir­vænt­ingar um alveg nýja fram­tíð framundan,“ segir Sigríður.

Dimission ferðAð sögn sjón­ar­votta var mikil drykkja meðal kenn­ara.

Eftir hádegi yfir­gáfu útskrift­ar­nemar skól­ann, snæddu hádeg­is­verð á heima­vist­inni og héldu svo í sjó­ferð á litlum fiski­báti til Súða­víkur, þar sem sveit­ar­stjóri og kona hans buðu upp á kaffi.

„Á sigl­ing­unni frá Ísafirði til Súða­víkur bar mikið á því að skóla­meist­ari og flestir kenn­arar voru orðnir vel við skál,“ segir Sigríður. „Skóla­meist­ari hékk í reið­anum og þrum­aði ræður yfir okkur verð­andi stúd­entum. Það vakti undrun mína, að skóla­meist­ari og fleiri kenn­arar voru orðnir hauga­drukknir svona rétt eftir hádegið. Það var ekki mein­ingin að dimis­son ætti að fjalla um fylli­erí kenn­ara, aftur á móti átti þetta að vera dagur kom­andi stúd­enta sem voru að kveðja skól­ann.“

Frá Súðavík var siglt til Bol­ung­ar­víkur og sund­laugin sér­stak­lega opnuð fyrir nem­endur til að hafa sig til fyrir veislu­höld kvölds­ins. Sigríður segir að þar hafi verið minna um ræðu­höld af hálfu Jóns Baldvins.

„Aftur á móti var hann byrj­aður að sigta nokkrar af okkur út, reyna að fá mig og fleiri á ein­tal við sig og káfa á okkur. Ég forð­að­ist fljótt að vera ein með honum.
Þegar ég og skóla­systur mínar vorum nýkomnar út í laug­ina í Bol­ung­ar­vík, þá stökk Jón Baldvin allsnak­inn út í laug­ina.“

„Með radarinn beint á stelpurnar“

Sigríður segir að sér hafi brugðið við þetta athæfi, þar sem allir hafi vitað að sund­ferð væri á dag­skránni og því tekið sund­föt með sér. „Þessi nakti maður kom synd­andi í átt­ina til okkar og við vorum allar í sjokki. Þessu var bjargað af einum af þeim kenn­urum sem ekki var hauga­fullur, hann stökk upp úr laug­inni, og fór í föt og bauð Jóni Baldvini sund­skýl­una sína og fékk skóla­meist­ara upp úr laug­inni og inn í bún­ings­klef­ann. Við stelp­urnar gátum andað aðeins léttar.“

„Hann byrj­aði að strjúka á mér brjóstin og lendar.“

Að sögn Sigríðar hélt áreitið áfram þegar Jón Baldvin, sem var fer­tugur að aldri, var kom­inn í sund­skýl­una. „Hann hopp­aði út í laug­ina aftur, með rad­ar­inn beint á stelp­urnar. Hann byrj­aði að strjúka á mér brjóstin og lendar, sem var afar óþægi­legt og raunar mjög frá­hrind­andi svo ég stökk upp úr sund­laug­inni og fór í heita pott­inn.

Þá byrj­aði skóla­meist­ari að elta aðrar stelpur, sem end­aði með að við flúðum upp úr sund­laug­inni hver af annarri og fórum í heita pott­inn. Þaðan sá ég að skóla­meist­ari upp­götv­aði að allt kven­kyns var í heita pott­inum. Hann kom fljúg­andi þangað. Við stukkum allar upp úr heita pott­inum um leið,“ segir hún.

Gamlar klámvísur og áreiti eftir sundferð

Sigríður seg­ist hafa verið í sjokki yfir kyn­ferð­is­legri hegðun skóla­meist­ar­ans. „Á eftir gengum við frá sund­laug­inni í hópum að húsi því sem veislan átti að fara fram,“ segir hún. „Jón Baldvin hékk í mér á leið­inni frá sund­laug­inni, leit­aði kyn­ferð­is­lega á mig og fór með gamlar klám­vísur, sem mér fannst óþægi­legt og frá­hrind­andi. Þessi kyn­ferð­is­lega áreitni stopp­aði ekki og hann hélt áfram í veisl­unni líka.“

Stundin ræddi við þrjár skóla­systur Sigríðar sem urðu vitni að atburðum dags­ins. Segjast þær allar hafa séð Jón Baldvin stökkva nak­inn út í laug­ina og elta uppi kven­kyns nem­endur sína. 

Sigríður segir að nem­endur hafi ekki kvartað undan athæf­inu. „Nei, við vorum öll í sjokki, og þar að auki bárum við virð­ingu fyrir Bryndísi.“ Á hún þar við Bryndísi Schram, eig­in­konu Jóns Baldvins, sem einnig hafði starfað í skól­anum.

Þetta var síð­asta ár Jóns Baldvins sem skóla­meist­ari mennta­skól­ans. Hann hafði í vax­andi mæli farið að taka sæti sem vara­þing­maður á Alþingi. Eftir þetta varð hann rit­stjóri Alþýðu­blaðs­ins og árið 1982 hófst sextán ára sam­felldur þing­manns­fer­ill, þar sem hann varð meðal ann­ars utan­rík­is­ráð­herra fyrir Íslands hönd og síðar sendi­herra Íslands gagn­vart Banda­ríkj­unum.

Siglt til Bol­ung­ar­víkurSund­laugin var opnuð sér­stak­lega fyrir nem­endur í til­efni dags­ins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár