Mynd: Davíð Þór

Mér finnst gaman að gleðja fólk

Rétt eins og margir jafn­aldrar hans vakir hinn sextán ára Kári Egilsson fram á nætur og sefur lengi í jóla­frí­inu. En það eru ekki tölvu­leikir eða sam­fé­lags­miðlar sem halda fyrir honum vöku. Á næt­urnar kemur sköp­un­ar­kraft­ur­inn nefni­lega yfir hann og þá finnst honum gott að semja tón­list.

Fyrir skemmstu hlaut Kári Egilsson, sem er ekki nema sextán ára, hvatn­ing­ar­verð­laun ASCAP, en svo nefn­ast Samtök laga­höf­unda og höf­und­ar­rétt­ar­hafa í Banda­ríkj­unum. Kári fór með for­eldrum sínum til New York og veitti verð­laun­unum við­töku í Lincoln Center. Þar spil­aði hann frum­samið verk, samið sér­stak­lega fyrir til­efnið, frammi fyrir fullum sal af fólki úr tón­list­ar­lífi New York-borgar.

Þegar blaða­maður og ljós­mynd­ari Stund­ar­innar bönk­uðu uppá hjá Kára skömmu fyrir jól aðstoð­aði hann þau við að kom­ast í jóla­skapið, með því að setj­ast við flygil­inn og spila óæft og af fingrum fram lagið Have Yourself a Merry Little Christmas.

Verð­launin sem Kári hlaut eru veitt í nafni Desmonds Child, höf­undi laga sem margir þekkja vel, á borð við Livin on a Prayer, sem hann samdi fyrir Bon Jovi, Livin la Vida Loca fyrir Ricky Martin og I Was Made for Lovin You fyrir Kiss.

„Jú, þetta er auð­vitað mjög mik­ill heiður,“ segir Kári sjálfur en hefur ann­ars ekki mörg orð um það til við­bótar. Það þarf ekki að tala við hann lengi til að finna að honum líkar ekki mjög vel að hreykja sér eða ræða sér­stak­lega um góðan árangur sinn, sem þó hlýtur að telj­ast nokkuð aðdá­un­ar­verður fyrir sextán ára dreng frá Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár