Gerir upp erfitt áfall úr æsku í gegnum sönginn

Hrika­legir atburðir sem Stefán Jak­obs­son upp­lifði sem nítján ára piltur koma fram í laga­textum á nýrri plötu.

Gerir upp erfitt áfall úr æsku í gegnum sönginn

Á nýút­gef­inni sóló­plötu gerir Stefán Jakobson upp afdrifa­ríkt áfall frá ung­lings­aldri sem hafði djúp­stæð áhrif á hann til fjölda ára. Hann syngur út frá til­finn­ingum sem tengj­ast erf­iðum skiln­aði við lífs­föru­naut sinn og snertir við mann­legum hug­renn­ingum sem allir ættu að að geta tengt við. 

Stefán hefur komið víða við á tutt­ugu ára ferli sínum sem tón­list­ar­maður og kann sög­una af mörgum ævin­týra­legum sögum af ferl­inum. En það sem brennur á honum í dag er nýja platan hans sem ber ein­fald­lega nafnið JAK sem er í senn upp­gjör á þungum lífs­brotum úr lífi Stefáns sem finnur sig nú sem aldrei fyrr reiðu­bú­inn til þess að stíga ber­skjald­aður úr boxi þung­arokks­ins með hug­rekkið í fartesk­inu. 

„Þegar maður nær botn­inum á sama hvaða hátt sem er þá dugar ekk­ert annað en að vera kjark­aður og spyrna frá, þá er leiðin aldrei önnur en upp á við,“ byrjar Stefán sam­talið ein­lægt og fær sér vænan sopa af rót­sterkum kaffi­bolla, eða sveita­bolla eins og hann sjálfur kýs að kalla hann. Við mæt­umst á Hilton hót­eli, en Stefán er í skot­ferð í höf­uð­borg­inni til þess að sinna mús­ík­inni en ann­ars er hann búsettur á æsku­stöðv­unum, í sveit­inni sinni, Mývatns­sveit.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár