Íslendingar í hópferðir til útlanda að sækja sér tannlækningar

Margfalt fleiri hérlendis sleppa því að fara til tann­læknis vegna kostnaðar en á hinum Norður­löndunum. Pólskir og ungverskir tann­læknar hafa ráðið Íslendinga til starfa í markaðs­setningu og við umboðs­störf. Fjórfalt fleiri lífeyris­þegar hafa farið til tann­læknis í útlöndum það sem af er ári en allt árið í fyrra.

Tannlæknir að störfum.
Tann­læknir að störfum. Íslend­ingar flykkj­ast til Evrópu vegna góðrar en jafn­framt ódýrrar tann­lækna­þjón­ustu. Á und­an­förnum árum hefur greiðslu­byrði öryrkja og aldr­aðra hækkað gríð­ar­lega en Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur lofað auknum fjár­munum til mála­flokks­ins. Mynd: Shutterstock

Um tíu prósent þjóðarinnar fór ekki til tann­læknis vegna kostnaðar árið 2015 samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar og er svo komið að Íslendingar fara í hópferðir til Austur-Evrópu til að sækja sér hagstæðari tannlækna­þjónustu. „Þetta var allt saman mjög ódýrt,“ segir Harpa Lind Marteins­dóttir, sem segist hafa sparað sér og fjöl­skyldunni hálfa milljón í tann­lækninga­kostnað við að fara til Póllands í stað þess að sækja íslenska tannlækna­þjónustu.

Verst er staðan hjá tekju­lægsta fimmtungi þjóðarinnar en þar sáu um 17 prósent þess hóps sér ekki fært að fara til tann­læknis. Þá eru konur líklegri en karlar til þess að neita sér um nauðsyn­lega tannlækna­þjónustu en nærri tólf prósent kvenna sáu sér ekki fært að fara til tann­læknis það árið.

Í dag er algengt að Íslendingar leiti tannlækna­þjónustu utan landsteinanna. Margar tann­læknastofur í Evrópu hafa ráðið til starfa Íslendinga sem starfa sem umboðs­menn fyrir stofurnar. Þá eru skipulagðar hópferðir þar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár