Alls konar dót en ekkert hefðbundið

Fjöl­breytt bók- og prent­verk sem fyr­ir­finnst ekki í næstu bóka­búð verður að finna á bók­verka- og prent­blóti Reykja­víkur sem fram fer á Kjar­vals­stöðum á laug­ar­dag. Þau sem hafa áhuga á að eign­ast verk eftir upp­renn­andi lista­menn gætu gert margt vit­laus­ara en að líta þar inn, þar sem fjöldi upp­renn­andi lista­manna tekur þátt.

Alls konar dót en ekkert hefðbundið
Óreiðu­mót­or­inn Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir sýnir „lítið drasl sem hún er sjálf búin að búa til“ á prent­blót­inu sem fram fer á Kjar­vals­stöðum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ímyndaðu þér lítið þorp þar sem íbú­arnir tækju ákvörðun um að halda jóla­markað. Nema að í þessu þorpi væru allir hönn­uðir, rit­höf­undar, teikn­arar og lista­menn. Þetta verður þannig – alls konar dót til sölu, bara ekki hefð­bundið.“ Þannig lýsir Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir and­anum á bók­verka- og prent­blóti Reykja­víkur, sem fram fer á Kjar­vals­stöðum 14. apríl næst­kom­andi. Meira en sex­tíu ein­stak­lingar eða félög hafa bókað sér bás á sam­kom­unni þetta árið.

„Ímyndaðu þér lítið þorp þar sem íbú­arnir tækju ákvörðun um að halda jóla­markað. Nema að í þessu þorpi væru allir hönn­uðir, rit­höf­undar, teikn­arar og lista­menn.“

Þetta er fjórða árið í röð sem prent­blótið fer fram. Það var breskur nem­andi við mynd­list­ar­deild LHÍ sem boð­aði til þess í fyrsta sinn. Hann hafði ekki hug á að halda því áfram en aðrir voru komnir á bragðið og tóku við kefl­inu. Þeirra á meðal eru Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir, Sam Rees, sam­kenn­ari hennar við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár