Mynd: Af vef Landspítalans

Einkavæðingin í heilbrigðiskerfinu: 20 ára saga í máli og myndum

Sjúkra­húsin hafa verið fjársvelt meðan einka­að­ilar græða á heil­brigð­is­þjón­ustu.

Útgjöld hins opin­bera til einka­stofu­starf­semi sér­fræði­lækna hafa auk­ist um 46 pró­sent á und­an­förnum 20 árum meðan útgjöld til opin­berrar sjúkra­húsa­þjón­ustu hafa auk­ist um 7 pró­sent. Þetta kemur í ljós þegar rýnt er í heil­brigðis­út­gjöld á föstu verð­lagi frá 1998 með til­liti til mann­fjölda­þró­unar.

Svandís Svav­ars­dóttirheil­brigð­is­ráð­herra

Und­an­farnar vikur hafa hags­muna­sam­tök lækna gagn­rýnt heil­brigð­is­ráð­herra harð­lega fyrir að gefa Sjúkra­trygg­ingum Íslands fyr­ir­mæli um að hafna umsóknum nýrra lækna um aðild að ramma­samn­ingi hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands.

Lækna­fé­lag Reykja­víkur telur þetta bitna á öryggi sjúk­linga og atvinnu­frelsi innan heil­brigð­is­geirans. Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra, sagði rík­is­stjórn­ina vega að hinum einka­rekna hluta heil­brigð­is­kerf­is­ins og Stein­grímur Ari Arason, frá­far­andi for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands, lýsti því yfir um helg­ina að hann teldi vinnu­brögð heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins ekki stand­ast lög. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra telur hins vegar að núver­andi fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­komu­lag sé gallað og breyt­inga þörf. 

Hlutur einkastofurekstrar jókst

Hlut­deild sér­fræði­lækna og einka­stofu­rekstrar í heild­ar­út­gjöldum hins opin­bera til heil­brigð­is­mála hefur vaxið hröðum skrefum und­an­farin 20 ár, eða um 30 pró­sent. 

Aukn­ingin varð mest á árunum eftir að ný heil­brigð­is­lög og lög um sjúkra­trygg­ingar voru sam­þykkt og sér­stakri stofnun, Sjúkra­trygg­ingum Íslands, komið á fót til að ann­ast samn­ings­gerð og kaup á heil­brigð­is­þjón­ustu af einka­að­ilum.

Rúnar Vil­hjálms­son, pró­fessor við hjúkr­un­ar­fræði­deild Háskóla Íslands, bendir á að lögin feli ekki í sér nein tak­mörk fyrir því hversu stóran hluta heil­brigð­is­þjón­ust­unnar megi bjóða út til einka­að­ila á grund­velli samn­inga.

„Auk þess er ráð­herra í mjög stóru hlut­verki og getur tekið stefnu­mark­andi ákvarð­anir án þess að bera það nokkurn tím­ann undir þingið. Þetta er umhugs­un­ar­efni í ljósi þess að í hugum kjós­enda skipta heil­brigð­is­málin gríð­ar­legu máli. Kosn­ingar eftir kosn­ingar er þessi mála­flokkur í efstu tveimur sæt­unum yfir þá mála­flokka sem kjós­endur telja mik­il­væg­asta. Það skýtur því auð­vitað skökku við að umgjörð heil­brigð­is­kerf­is­ins sé með þeim hætti að ekki þurfi að leita sam­þykkis Alþingis fyrir stefnu­mark­andi ákvörð­unum,“ segir hann. 

Þróunin á skjön við kröfur almenn­ingsRúnar Vil­hjálms­son pró­fessor bendir á að einka­væð­ingin og rekareiða­stefnan í heil­brigð­is­málum gangi gegn við­horfum yfir­gnæf­andi meiri­hluta lands­manna sam­kvæmt könn­unum.

Vandinn sé í raun þrí­þættur. „Sjúkra­trygg­inga­stofnun eru ekki sett skýr ytri mörk, ráð­herra hefur mikið vald til stefnu­mark­andi ákvarð­ana og ofan á þetta bæt­ist að stefnan hefur verið óljós. Viðhorf almenn­ings er hins vegar mjög skýrt. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti Íslend­inga vill aukið fé til heil­brigð­is­mála. Þetta leiddi und­ir­skrifta­söfnun Kára Stef­áns­sonar í ljós, þar sem hátt í 90 þús­und manns köll­uðu eftir stór­auknum fjár­veit­ingum til heil­brigð­is­kerf­is­ins, en jafn­framt kann­anir mínar sem sýna að yfir 90 pró­sent full­orð­inna vilja meira fé til heil­brigð­is­mála. Þegar spurt er um rekst­ur­inn kemur svo í ljós að yfir 80 pró­sent vilja að ríkið beri ríka rekstr­ar­lega ábyrgð í heil­brigð­is­kerf­inu og sé fyrst og fremst sá aðili sem reki heil­brigð­is­þjón­ust­una.“  

Þróun und­an­far­inna ára hefur ekki verið í takt við þann almanna­vilja sem Rúnar lýsir.

Útreikn­ingar Stund­ar­innar. Byggt á mann­fjölda­tölum Hagstofu, rík­is­reikn­ingum og fjár­lögum árs­ins 2017

Meðan sjúkra­húsum og opin­bera heil­brigð­is­kerf­inu er snið­inn þröngur stakkur sam­kvæmt fjár­lögum ár eftir ár hafa fram­lög hins opin­bera til þjón­ustu sem einka­reknar lækna­stofur og lækn­inga­fyr­ir­tæki veita auk­ist jafnt og þétt. 

Fyrir alda­mót stóð hlut­fall sér­fræði­lækna og einka­stofu­starf­semi í rúm­lega 4 pró­sentum af heil­brigðis­út­gjöldum hins opin­bera, en á und­an­förnum fjórum árum hefur það náð tæp­lega 6 pró­sentum.

Þetta má meðal ann­ars rekja til ramma­samn­ings Sjúkra­trygg­inga við sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna um lækn­ingar utan sjúkra­húsa sem tók gildi í árs­byrjun 2014 en að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar var ekki gengið til samn­ing­anna á grund­velli heild­stæðra og ítar­legra þarfa- og kostn­að­ar­grein­inga. Þetta er samn­ing­ur­inn sem Lækna­fé­lag Reykja­víkur gagn­rýnir nú stjórn­völd fyrir að brjóta. 

Frá 2007 til 2016 hækk­uðu fjár­fram­lög hins opin­bera til sér­greina­lækna um tæp 42 pró­sent meðan fram­lög til Land­spít­al­ans dróg­ust saman um 7 pró­sent. 

Óskýr löggjöf ávísun á einkavæðingu

Rúnar Vil­hjálms­son benti á það þegar sjúkra­trygg­inga­frum­varpið var til umfjöll­unar á Alþingi árið 2007 að lögin og útfærsla þeirra kynni að leiða til auk­innar einka­væð­ingar og mark­aðsvæð­ingar íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu.

„Hið helsta sem nefna má er að ekki er nægi­lega ljóst hvert ferð­inni er heitið, eða hvers vegna lagt er upp í ferð­ina,“ skrif­aði hann í minn­is­blaði til heil­brigð­is­nefndar Alþingis. „Þannig er til dæmis ekk­ert fjallað um hver rekstr­ar­leg ábyrgð hins opin­bera gagn­vart ein­stökum rekstr­ar­þáttum heil­brigð­is­þjón­ust­unnar eigi að vera.“ 

Í febr­úar síð­ast­liðnum, 10 árum eftir að sjúkra­trygg­inga­lögin tóku gildi, skil­aði Rík­is­end­ur­skoðun ítar­legri stjórn­sýslu­út­tekt um Sjúkra­trygg­ingar Íslands sem stað­festir margt af því sem fram kom í athuga­semdum Rúnars. 

„Hafa stjórnvöld með þessu gefið hags­munahópum lausan taum­inn“ 

Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar er í raun alls­herjar áfell­is­dómur yfir starfs­um­hverfi, starf­semi og starfs­háttum Sjúkra­trygg­inga að því er varðar gerð, fram­kvæmd og eft­ir­lit með samn­ingum rík­is­ins við einka­að­ila á sviði heil­brigð­is­þjón­ustu.

Þar er jafn­framt fundið að því að heil­brigð­is­ráð­herrar hafi ekki mótað heild­stæða stefnu um heil­brigð­is­þjón­ustu sem starf­semi Sjúkra­trygg­inga Íslands geti tekið mið af líkt og gert er ráð fyrir í gild­andi lögum. „Kaup og samn­ingar stofn­un­ar­innar hafa að miklu leyti ráð­ist af áherslum fjár­laga, tíma­bundnum átaks­verk­efnum og úrlausn til­fallandi vanda­mála hverju sinni. Slíkar ráð­staf­anir stuðla ekki að hag­kvæmni og skil­virkni til lengri tíma litið. Við slík skil­yrði hafa samn­ingar Sjúkra­trygg­inga í raun verið stefnu­mót­andi fyrir þróun og gerð heil­brigð­is­kerf­is­ins,“ segir í skýrsl­unni. 

Tildrög samningsgerðar á skjön við tilgang sjúkratryggingalaga

Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar er samn­ingur Sjúkra­trygg­inga við sér­greina­lækna frá 2014 því marki brenndur að hann felur í sér fjár­hags­lega hvata til gríð­ar­legra afkasta óháð gæðum og árangri.

Stjórn Land­spít­al­ans hefur einnig gagn­rýnt samn­ing­inn og sagt hann „skóla­bók­ar­dæmi um óskil­greind og ótak­mörkuð kaup á þjón­ustu fyrir almannafé“ og Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, talar um „sjálf­skömmtun rík­is­fjár­muna til einka­rekstrar“.  

Athygli vekur að samn­ings­gerðin gekk í ber­högg við vilja lög­gjafans eins og hann birt­ist í grein­ar­gerð með lög­unum um sjúkra­trygg­ingar frá 2008. Þar kom fram að horfið skyldi frá þeirri til­högun að semja við fag- og stétt­ar­fé­lög um heil­brigð­is­þjón­ustu eins og áður hafði tíðkast. 

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoðun er gerð athuga­semd við til­drög samn­ings­gerð­ar­innar í ráð­herra­tíð Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra. Að því er fram kom í við­tölum stofn­un­ar­innar við full­trúa frá Lækna­fé­lagi Reykja­víkur átti Kristján frum­kvæði að því árið 2013 að bjóða samn­inga­nefnd félags­ins til­tekna pró­sentu­hækkun á taxta þar sem tekið yrði mið af verð­þróun. Það kom svo í hlut Sjúkra­trygg­inga að semja um önnur atriði út frá for­send­unum sem heil­brigð­is­ráð­herra setti fram.

„Þetta verk­lag er ekki í sam­ræmi við reglu­gerð nr. 510/2010 um samn­inga um heil­brigð­is­þjón­ustu sem veitt er utan heil­brigð­is­stofn­ana sem ríkið rekur,“ segir í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Það sama var upp á ten­ingnum þegar vel­ferð­ar­ráðu­neytið sá alfarið um til­tekin kaup á biðlista­að­gerðum árið 2016, þrátt fyrir að það sé lög­bundið hlut­verk Sjúkra­trygg­inga Íslands að ann­ast samn­ings­gerð um kaup á heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir hönd rík­is­ins. 

Aukin áhersla á einkarekstur í ráðherratíð Kristjáns

Um svipað leyti og Kristján Þór hafði for­göngu um samn­ings­gerð við sér­fræði­lækna árið 2013 fór hann mik­inn um kosti einka­rekst­urs í fjöl­miðlum og sagði ríkið ekki best til þess fallið að ann­ast rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu. Um leið lýsti hann því yfir, meðal ann­ars á aðal­fundi Lækna­fé­lags Íslands, að ekki væri til fjár­magn í nýjan spít­ala. „Ég tel rík­is­sjóð ekki í neinum færum í dag til að hefja bygg­ingu spít­ala sem kostar 40 til 50 millj­arða,“ sagði hann í við­tali við Lækna­blaðið þetta ár. 

Vildi auk­inn einka­reksturKristján Þór Júl­í­us­son, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, lagði áherslu á að draga úr rík­is­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu.

Áherslur Krist­jáns rím­uðu við þá stefnu sem mörkuð var í lands­fund­ar­á­lyktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2013, en þar var hvatt til auk­innar fjöl­breytni í úrræðum fyrir not­endur heil­brigð­is­þjón­ustu. „Nýta á kosti fjöl­breyttra rekstr­ar­forma í heil­brigð­is­kerf­inu til að auka árangur í þjón­ustu og hag­kvæmni í rekstri,“ sagði þar.

Í loka­rit­gerð Jóns Þórs Krist­jáns­sonar í stjórn­mála­fræði frá 2015 kemur fram að eftir lykla­skiptin 2013, þegar Kristján Þór tók við af Guð­bjarti Hann­essyni sem heil­brigð­is­ráð­herra, hafi fljót­lega farið að bera á breyt­ingum í þessum anda. Haft er eftir fyrr­ver­andi starfs­manni ráðu­neyt­is­ins að Kristján Þór hafi sýnt hug­myndum utan­að­kom­andi ráð­gjafa um fjöl­breytt rekstr­ar­form í heil­brigð­is­þjón­ustu meiri áhuga en Guð­bjartur Hann­es­son gerði. Guð­bjartur hefði treyst meira á emb­ætt­is­menn innan ráðu­neyt­is­ins heldur en Kristján Þór sem lagði strax áherslu á að ná fram auk­inni hag­kvæmni í heilsu­gæslu­kerf­inu, meðal ann­ars með auknum einka­rekstri. 

„Nú hafa árin liðið og þetta er hálf­gerð sorg­ar­saga, í raun dæmi­gerð fyrir lausa­tökin í stefnu­mótun sem rætt hefur verið um“

„Guð­bjartur fór af stað með til­raun til heild­ar­stefnu­mót­unar í heil­brigð­is­málum þar sem breiður hópur fólks var kall­aður saman og unnið var í mál­efna­hópum. Út úr þessu komu drög að stefnu í ýmsum mála­flokkum heil­brigð­is­kerf­is­ins. Eftir stjórn­ar­skiptin 2013 var þess­ari vinnu hins vegar ekki fylgt eftir,“ segir Rúnar Vil­hjálms­son pró­fessor í sam­tali við Stundina. „Nú hafa árin liðið og þetta er hálf­gerð sorg­ar­saga, í raun dæmi­gerð fyrir lausa­tökin í stefnu­mótun sem rætt hefur verið um. Að ein­hverju leyti má kannski rekja þennan vanda til þess að ráð­herrar sitja sjaldan heilt kjör­tíma­bil í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og aðhald þings­ins í heil­brigð­is­málum hefur sögu­lega verið lítið. Þannig vantar sam­fellu. Þetta veldur því að oft verður ákveðin þróun sem er ekki bein­línis afleið­ing af stefnu­mörkun heldur öllu heldur því sem kallað hefur verið stefnu­rek.“ 

Opinn tékki hjá sérfræðilæknum

Lausa­tökin í stefnu­mótun innan heil­brigð­is­kerf­is­ins hafa haft víð­tæk áhrif. Birgir Jak­obs­son, fyrr­ver­andi land­læknir og núver­andi aðstoð­ar­maður heil­brigð­is­ráð­herra, benti á það í erindi á Þjóð­ar­spegl­inum í Háskóla Íslands síð­asta haust að í kerf­inu sem nú er við lýði væri opin­ber þjón­usta fjár­mögnuð sam­kvæmt fyr­ir­komu­lagi  sem héldi aftur af afköstum þjón­ust­unnar meðan einka­rekin þjón­usta væri fjár­mögnuð sam­kvæmt mjög hvetj­andi greiðslu­kerfi sem leiddi jafn­vel til oflækn­inga á ýmsum sviðum. Þannig hefði fjár­magn til einka­rek­innar þjón­ustu auk­ist um 40 pró­sent eftir hrun en dreg­ist saman um 10 pró­sent til opin­bera kerf­is­ins. „Þetta ger­ist alger­lega án íhlut­unar stjórn­valda sam­kvæmt opnum ramma­samn­ingi Sjúkra­trygg­inga Íslands við sér­greina­lækna,“ sagði Birgir. 

Stefnu­rekið gagn­ast hags­muna­að­ilumSig­ur­björg Sig­ur­geirs­dóttir stjórn­sýslu­fræð­ingur hefur bent á að óskýr stefna gefur hags­muna­hópum færi á að hnika þróun heil­brigð­is­kerf­is­ins í átt sem hentar þeim.

Sig­ur­björg Sig­ur­geirs­dóttir, dós­ent í opin­berri stjórn­sýslu við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, telur að þetta „stefnu­rek“ hafi spilað upp í hend­urnar á hags­muna­að­ilum.

„Óhætt er að segja að skortur á pólitískri for­ustu, áhuga­leysi og slök eft­ir­fylgni stjórnvalda með stefnumótun innan heil­brigð­is­kerf­is­ins hafi öðru fremur mótað kerfið,“ skrif­aði hún í grein sem birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál og stjórn­sýsla árið 2015. „Hafa stjórnvöld með þessu gefið hags­munahópum lausan taum­inn og þróunin innan kerf­is­ins því tekið á sig mynd stefnu­reks þar sem ráðandi hags­munum innan kerf­is­ins gefst svigrúm til að hnika til stefnumótun­inni sér í hag.“ 

Þrýstingur frá hagsmunaaðilum hefur mótandi áhrif

Stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar rennir stoðum undir þessa gagn­rýni, en þar er sér­stak­lega vikið að „þrýst­ingi frá hags­muna­að­ilum“ og áhrifum slíks þrýst­ings á þróun kerf­is­ins.

Bent er á að að Sjúkra­trygg­ingar Íslands búi ekki yfir sömu fag­legu þekk­ingu á þeirri þjónustu sem samið er um og við­semj­endur stofn­un­ar­innar og standi því ekki jafn­fætis samn­ings­að­ilum. Inn­leið­ing nýrrar þjón­ustu hafi verið með þeim hætti að ein­stakir læknar sendi inn umsóknir til Sjúkra­trygg­inga og þá komi það í hlut sam­starfs­nefndar Læknafélags Reykjavíkur og Sjúkra­trygg­inga Íslands að fara yfir þær og meta hvort bæta skuli við nýjum gjaldskrárliðum. „Þannig hefur hags­munafélag lækna aðkomu að und­irbúningi ákvörðunar um breyt­ingar á gjaldskránni sem hefur rík áhrif á með hvaða hætti útgjöld ríkis­ins vegna ramma­samn­ings þróast,“ segir í skýrsl­unni. 

Afleið­ing­arnar blasa við: fjár­fram­lög hins opin­bera vegna þjón­ustu einka­rek­inna lækna­stofa og lækn­inga­fyr­ir­tækja hafa auk­ist í sífellu meðan opin­beru sjúkra­húsin hafa setið eftir.

Um leið fær­ist í auk­ana að læknar á Land­spít­al­anum séu þar aðeins í hluta­starfi og sinni einka­rekstri sam­hliða. Páll Matth­í­as­son, for­stjóri spít­al­ans, og Birgir Jak­obs­son hafa gagn­rýnt þessa þróun og sagt hana grafa undan skipu­lagn­ingu þjón­ustu á spít­al­anum og fram­þróun hans sem háskóla­sjúkra­húss. Úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar rennir stoðum undir þetta, en þar kemur fram að ramma­samn­ingur Sjúkra­trygg­inga vegna þjón­ustu sér­greina­lækna utan sjúkra­húsa kunni að raska þjón­ustu á heil­brigð­is­stofn­unum rík­is­ins.

Áhyggjur af þessu komu fram í við­tölum Rík­is­end­ur­skoð­unar við full­trúa Land­spít­al­ans sem töldu ein­sýnt að margir læknar sæju hag sínum betur borgið með því að starfa að hluta eða alfarið utan spít­al­ans og veita heil­brigð­is­þjón­ustu sam­kvæmt ramma­samn­ingnum. „Að mati Land­spít­ala hefði hátt hlut­fall lækna, sér­stak­lega eldri lækna, sem ynnu við spít­al­ann í hluta­starfi valdið röskun á sam­fellu klínískrar þjón­ustu og hefði að öllum lík­indum í för með sér að geta til klínískrar ákvarð­ana­töku væri ekki nægi­leg trygg á öllum tímum sól­ar­hrings­ins,“ segir í skýrsl­unni. Bent er á að ekki sé hægt að þvinga lækna til að starfa á Land­spít­al­anum hafi þeir ekki áhuga á því. Hins vegar geti samn­ing­ur­inn við sér­greina­lækna og hvata­kerfið sem í honum felst skapað aðstæður þar sem ríkið, sjúkra­hús og heil­brigð­is­stofn­anir sé í raun farið að keppa við sjálft sig um starfs­krafta sér­greina­lækna

Gagnvirk línurit – Hægt er að skoða tölurnar af meiri nákvæmni og hvora línu fyrir sig með því að renna músinni yfir myndirnar:

Tvíþætt einkavæðing heilbrigðiskerfisins

Rúnar Vil­hjálms­son segir að einka­væð­ingin í íslensku heil­brigð­is­kerfi sé tví­þætt. „Einka­væð­ingin er ann­ars vegar til­færsla á fjár­mögnun, þar sem sjúk­lingar bera stærri kostn­að­ar­hlut. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar og OECD hefur slík þróun átt sér stað á Íslandi und­an­farin ár. Þetta er þvert á þá stefnu sem hefur verið við lýði á Norð­ur­lönd­unum, þar sem fremur hefur verið reynt að minnka kostn­að­ar­hlut heim­ila. Þarna er sem­sagt einka­fjár­mögnun að aukast og það er ein teg­und einka­væð­ingar. Önnur teg­und er það sem kallað er einka­rekstr­ar­væð­ing, það er þegar hlutur einka­rekstrar eykst á móti opin­berum rekstri. Þetta hefur líka verið að ger­ast á Íslandi með auknum umsvifum einka­stofa sér­fræð­inga, fjölgun einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva og auknum umsvifum Lækna­vakt­ar­innar.

„Fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Lækna­fé­lags Íslands hafa haldið því fram að einka­rekstur eða auk­inn einka­rekstur sé ekki einka­væð­ing. Meðal fræði­manna og í alþjóð­legum umræðum er hins vegar eng­inn ágrein­ingur um hvað pri­vat­is­er­ing þýðir“

Fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Lækna­fé­lags Íslands hafa haldið því fram að einka­rekstur eða auk­inn einka­rekstur sé ekki einka­væð­ing. Meðal fræði­manna og í alþjóð­legum umræðum er hins vegar eng­inn ágrein­ingur um hvað pri­vat­is­er­ing þýðir, hún er rekstr­ar­leg og fjár­hags­leg og getur verið blanda af hvoru tveggja.“

For­ystu­flokkar síð­ustu tveggja rík­is­stjórna hafa hreykt sér af því að hafa „end­ur­reist heil­brigð­is­kerfið“ frá nið­ur­skurði kreppu­ár­anna. Raunin er hins vegar sú að útgjöld hins opin­bera til heil­brigð­is­mála, stað­virt á mann, eru enn tals­vert lægri en þau voru á árunum fyrir hrun.

Ef öldrun þjóð­ar­innar og spreng­ingin í ferða­þjón­ustu er tekin með í reikn­ing­inn blasir við enn dekkri mynd, mynd af fjársvelti opin­bera heil­brigð­is­kerf­is­ins. 

Minna varið til spítalaþjónustu en í síðasta góðæri

Miðað við verð­lag dags­ins í dag varði hið opin­bera 390 þús­und krónum á hvern ein­stak­ing til sjúkra­húsa­þjón­ustu í góð­ær­inu árið 2007 en aðeins 361 þús­und krónum í yfir­stand­andi góð­æri árið 2017. Annað er upp á ten­ingnum hvað varðar útgjöld hins opin­bera til sér­fræði­lækna á einka­stofum, en þau hafa auk­ist úr 24 þús­und krónum upp í 31 þús­und milli áranna 2007 og 2017. Þarna birt­ist rekstr­ar­lega hliðin á einka­væð­ingu íslensks heil­brigð­is­kerf­is­ins. 

Hin hliðin, fjár­mögn­un­ar­hliðin, sést best með því að bera saman heil­brigðis­út­gjöld hins opin­bera og heil­brigðis­út­gjöld heim­ila, hvort tveggja stað­virt á mann.

Á góð­ær­is­ár­inu 2007 námu heild­ar­út­gjöld hins opin­bera til heil­brigð­is­mála, deilt niður á mann­fjölda, 573 þús­und krónum. Lægst voru þau árið 2012, 487 þús­und krónur, en juk­ust svo jafnt og þétt í upp­sveifl­unni.

Engu að síður námu raun­út­gjöld hins opin­bera til heil­brigð­is­mála aðeins 546 þús­und krónum á hvern Íslend­ing í yfir­standi góð­æri árið 2017. Heil­brigðis­út­gjöld heim­ila hafa hins vegar auk­ist nær und­an­tekn­inga­laust á hverju ein­asta ári frá alda­mótum, náðu hámarki í fyrra og voru þá um 12 pró­sentum hærri en árið 2007. 

Þannig virkar einka­væð­ing íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins. Æ meira opin­beru fé er varið til einka­rek­innar þjón­ustu meðan spít­al­arnir sitja eftir. Raun­út­gjöld hins opin­bera til heil­brigð­is­kerf­is­ins í heild drag­ast saman meðan raun­út­gjöld heim­ila vegna heil­brigð­is­þjón­ustu aukast ár frá ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár