Kröfu­ganga Fjór­menn­ing­arnir segja meiri hörku að vænta í kjara­bar­átt­una. Mynd: Pressphotos

Fjórmenningarnir vilja nýja forystu ASÍ og harðari stefnu

Forystu­menn fjögurra verkalýðs­félaga vilja skipta út forystu ASÍ á sambands­þingi í haust og setja fram miklar kröfur þegar kjara­samningar losna um áramótin. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, varar við því að snúa aftur til þess tíma þegar verð­bólgan gleypti miklar launa­hækkanir.

Kosning nýrrar forystu í tvö stærstu verkalýðs­félög landsins er fyrirboði um uppstokkun í Alþýðu­sambandi Íslands og róttækari kröfur í næstu kjara­samningum. Nýir formenn VR og Eflingar, ásamt leiðtogum Framsýnar og Verkalýðs­félags Akraness, hafa undan­farið fundað saman sérstak­lega og sent frá sér sameiginlegar yfir­lýsingar. Félögin fjögur hafa meirihluta­vægi á sambands­þingi ASÍ í haust og stefna formennirnir á breytingar í þessum heildar­samtökum launa­fólks.

Gylfi Arnbjörnsson, núverandi forseti ASÍ, telur að lítill ágrein­ingur sé á milli hans og formannanna fjögurra um málefni og bendir á árangur núverandi stefnu verkalýðs­hreyfingarinnar og mikla kaupmáttar­aukningu frá tíma þjóðar­sáttar. Hann hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort hann býður sig aftur fram til forystu, en ljóst er að persónuleg óvild á báða bóga spilar inn í þessar deilur, sem oft fara fram á opinberum vettvangi.

Sambands­þing ASÍ fer fram í október og kjara­samningar losna í fram­haldinu um áramótin. Nái formennirnir fjórir breiðri samstöðu á þinginu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár