Mynd: Heiða Helgadóttir

Hann saklaus en þær í sárum

Klofn­ingur varð í sam­fé­lag­inu á Sauð­ár­króki eftir að ung kona kærði vin­sælan fót­bolta­strák fyrir nauðgun. Stundin hefur rætt við tólf konur vegna máls­ins, sem kvarta allar undan fram­göngu manns­ins og lýsa því hvernig hann fær öll tæki­færin og starf­aði sem fyr­ir­mynd barna á meðan þær glímdu við afleið­ing­arnar. Stúlk­urnar segj­ast hafa verið dæmdar af sam­fé­lag­inu, for­eldrar þeirra lýsa þögn­inni sem mætti þeim, en kærum á hendur mann­inum var vísað frá.

Í eft­irpar­tíi á Sauð­ár­króki er ein stúlkan ofurölvi, kastar upp og sofnar í rúmi hús­ráð­anda. Með­leigj­andi hans hafði fyrr um kvöldið verið eitt­hvað að daðra við hana en ekk­ert gerst, enda aldrei neitt verið á milli þeirra, en í stað þess að sofna í sínu her­bergi ákveður hann að gera það sem hann kallar „heið­ar­lega til­raun“, sjá hvort hann „kom­ist eitt­hvað með hana“, gengur inn í her­bergið og leggst upp í hjá henni. Svörin eru skýr þegar hún verður hans var: „Æi, X. Ekki núna. Þú veist. Ekki.“ Hann strýkur á henni lík­amann en hún segir honum að hætta. Hún biður hann margoft um að hætta, en hann heldur alltaf áfram, hættir kannski aðeins en heldur svo áfram. Spyr hvort hann megi ekki „gera eitt­hvað“, losar um brjósta­haldar­ann til að kom­ast inn á brjóstin og dregur niður um hana bux­urnar til að káfa á rass­inum. Að koma við brjóst hennar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár