Trúði þessu ekki fyrst Vilborg segir að þrátt fyrir að sam­band hennar við Þorstein hafi verið storma­samt og eyði­leggj­andi þá hafi ekk­ert í hans fari bent til þess að hann hefði óeðli­legar hneigðir til barna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fyrrverandi sambýlismaður minn er grunaður um að nauðga piltum

Vilborg Helga­dóttir, fyrr­ver­andi sam­býl­is­kona Þor­steins Hall­dórs­sonar, sem situr í gæslu­varð­haldi grun­aður um gróf kyn­ferð­is­brot gegn ungum piltum, er ennþá að glíma við afleið­ingar af sam­bandi við hann. Hún lán­aði honum meðal ann­ars háar fjár­hæðir.

Hvernig bregstu við þegar þú kemst að því að mað­ur­inn sem þú varst með í sam­búð í um þrjú ár hefur verið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald grun­aður um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á ung­lings­strákum? Vilborg Helga­dóttir stóð frammi fyrir þessum veru­leika í síð­asta mán­uði þegar fyrr­ver­andi sam­býl­is­maður hennar, Þor­steinn Hall­dórs­son, var nafn­greindur í fjöl­miðlum sem mað­ur­inn sem setið hefur í gæslu­varð­haldi grun­aður um gróf kyn­ferð­is­brot gegn 18 ára pilti. Þess má geta að sam­bandi þeirra lauk árið 2013.

Brotin munu hafa byrjað þegar pilt­ur­inn var ein­ungis 15 ára gam­all og var ákæra gegn Þor­steini þing­fest í októ­ber síð­ast­liðnum. Í jan­úar mun pilt­ur­inn síðan hafa sent móður sinni skila­boð í gegnum sam­skipta­for­ritið Snapchat þar sem hann bað hana að koma og bjarga sér frá Þor­steini, en pilt­ur­inn hafði þá opnað fyrir mögu­leika í sím­anum sínum til að sýna stað­setn­ingu sína. Þegar lög­regla kom á vett­vang kom pilt­ur­inn grát­andi út af gisti­heim­ili …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“
Mál Alberts komið til héraðssaksóknara: „Ég er saklaus“
InnlentKynferðisbrot

Mál Alberts komið til hér­aðs­sak­sókn­ara: „Ég er sak­laus“

Mál knatt­spyrnu­manns­ins Alberts Guð­munds­sonar er komið á borð hér­aðs­sak­sókn­ara en rann­sók­inu mál­inu er lokið af hálfu lög­reglu. Frá þessu greinir RÚV. Kolbrún Bene­dikts­dóttir stað­festir að kyn­ferð­is­brota­mál Alberts sé komið til þeirra en Albert var kærður í fyrr í sumar. „Ég er sak­laus af þeim ásök­unum sem komið hafa fram. Ég mun ekki tjá mig frekar á meðan málið er til...
Albert í ofurformi þrátt fyrir álag vegna kæru – Orðaður við stórlið
InnlentKynferðisbrot

Albert í ofur­formi þrátt fyrir álag vegna kæru – Orðaður við stór­lið

Albert Guð­munds­son hefur skorað í þremur leikjum í röð. Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Albert Guð­munds­son er í miklu stuði þessar mundir með félags­liði sínu Genoa en Albert hefur skorað mark í þremur leikjum í röð fyrir félagið. Albert hefur fengið mikið lof gagn­rýnenda fyrir frammi­stöðu sína og telja margir að hann verði keyptur til stór­liðs þegar félags­skipta­glugg­inn opnar í jan­úar. Hafa stór­liðin Napoli...
KFUM og KFUK safna ofbeldisupplýsingum um séra Friðrik: „Fjöldahreyfing fólks sem upplifir nú sorg“
InnlentKynferðisbrot

KFUM og KFUK safna ofbeld­is­upp­lýs­ingum um séra Friðrik: „Fjölda­hreyf­ing fólks sem upp­lifir nú sorg“

KFUM og KFUK hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu um séra Friðrik. Sagn­fræð­ing­ur­inn Guð­mundur Magn­ús­son hefur sent frá sér nýja ævi­sögu um Friðrik Frið­riks­son, en hann var oft­ast kall­aður séra Friðrik, og í henni greinir sagn­fræð­ing­ur­inn frá því að séra Friðrik hafi káfað á 11 ára dreng í sunnu­daga­skóla. Í bók­inni er haft eftir manni á átt­ræð­is­aldri að aðrir piltir hefðu...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár