Bjarni Bene­dikts­son Eitt verk­efna Burson-Mar­steller fyrir íslenskt skattfé var að rétta hlut Bjarna Bene­dikts­sonar í umfjöll­unum um upp­reist æru barn­a­níð­inga. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ríkisstjórn Íslands leggur skattfé í áróðursfyrirtæki

Íslensk yfir­völd leita til almanna­tengsla­fyr­ir­tækis sem hefur unnið fyrir Sádi-Arabíu og Erdogan Tyrk­lands­for­seta, auk aðila sem gerst hafa sekir um þjóð­ar­morð og morð á sak­lausum borg­urum. Hluti af 200 millj­ónum króna af skattfé sem runnið hefur til Burston-Mar­steller hefur farið í að rétta hlut Bjarna Bene­dikts­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

 Á síð­ustu árum hefur rík­is­stjórnin verið með fastan samn­ing við alþjóð­lega áróð­urs­fyr­ir­tækið Burson-Mar­steller og greitt því yfir 200 millj­ónir króna í við­leitni til þess að bæta ímynd lands­ins. Að því sagt er.

Í svari við fyr­ir­spurn til Stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að greiðsl­urnar, á ára­bil­inu 2012 til 2017 hafi numið allt frá tæpum 20 millj­ónum til tæpra 60 millj­óna fyrir hvert ár. Heild­ar­greiðslan er 201 milljón.

Áður hefur komið fram á Stund­inni að rík­is­sjóður greiddi Burson-Mar­steller 3,7 millj­ónir króna í sept­em­ber síð­ast­liðnum þegar hneyksli sem fól í sér þöggun vegna upp­reistrar æru barn­a­níð­inga sprengdi rík­is­stjórn­ina. Málið vakti mikla athygli í erlendum fjöl­miðlum og fyr­ir­sagnir þeirra end­ur­spegl­uðu ytri sýn; barn­a­níð­ingsskandall sprengdi rík­is­stjórn­ina; faðir for­sæt­is­ráð­herr­ans var iðu­lega nefndur. Mynd af Bjarna Bene­dikts­syni fylgdi gjarnan.

„Gott orðspor“

Í leið­togaum­ræðum á RÚV 8. októ­ber síð­ast­lið­inn fyrir síð­ustu kosn­ingar, varði Bjarni þessar greiðsur til Burson-Mar­steller. „Þetta er fyir­tæki sem hefur gott orð­spor …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár