Mynd:

„Ég má ekkert segja“ – Stúlkan Halldóra

Hörm­ung­ar­saga ungrar konu sem hvarf á Eski­firði.

Þegar börnin komu hlaup­andi neðan af bryggj­unni á Eski­firði og sögðu, óða­mála, að það væri mann­vera í sjónum við bryggj­una við Fram­kaup­stað, tóku menn það alvar­lega. Í hálfan mánuð hafði verið leitað að Halldóru Bjarna­dóttur vinnu­konu, sem hafði horfið spor­laust, svo að menn grun­aði hið versta.

Þetta var 30. sept­em­ber 1936 og tíð­indin um leit­ina að Halldóru höfðu farið víða og frá svip­legu hvarfi hennar greint í lands­blöðum, útvarpi og lands­hluta­blöðum.

Það höfðu farið af stað miklar sögur um atlæti og aðbúnað áður en hún hvarf sem settu þann beyg að mönnum að hvarf hennar hefði borið að með svip­legum hætti.

Börnunum var bægt frá og menn á vegum yfir­valds­ins á staðnum slæddu botn­inn undan bryggj­unni og áður en langt um leið lyft­ist lík hennar úr köldum sjónum sem hafði greini­lega geymt það í ein­hverja daga; hversu lengi var ekki vitað fyrir víst og átti það síðar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár