Brynjar þrætti fyrir að hafa verið lögmaður Bóhems en sendi bréf sem slíkur

Brynjar Níelsson, for­maður stjón­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sagði upp­lýs­ingum um að hann hefði starfað fyrir nekt­ar­dans­stað­inn Bóhem hafa verið „plant­aðar í gagna­grunn“ Google og þær væru rangar. Brynjar starf­aði hins vegar fyrir skemmti­stað­inn eins og fram kemur í bréfi sem hann sendi fyrir hönd stað­ar­ins.

Brynjar þrætti fyrir að hafa verið lögmaður Bóhems en sendi bréf sem slíkur
Brynjar Níelsson Þvertók fyrir að hafa starfað fyrir nekt­ar­dans­stað­inn Bóhem en und­ir­ritun hans á bréf til borg­ar­ráðs Reykja­víkur bendir til ann­ars. Mynd: Pressphotos

Brynjar Níelsson, alþing­is­maður og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, vildi ekki kann­ast við að hafa starfað fyrir nekt­ar­dans­stað­inn Bóhem í færslu á Facebook vegna umræðu um bak­grunn hans í tengslum við með­ferð nefnd­ar­innar á máli manns sem fékk upp­reist æru og hafði verið lög­maður Bóhem. Brynjar sagði að upp­lýs­ingum um að hann hefði verið lög­maður Bóhem hefði verið „plantað í gagna­grunn“ Google. Brynjar starf­aði hins vegar fyrir nekt­ar­stað­inn eins og fram kemur í bréfi sem hann sendi fyrir hönd stað­ar­ins til Reykja­vík­ur­borgar árið 2003.

Bréfið til borg­ar­ráðsBrynar sendi borg­ar­ráði bréf fyrir hönd Bóhems þar sem hann fór fram á að borg­ar­ráð end­ur­skoð­aði reglu­verk sitt við veit­ingu áfeng­is­leyfa.

Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir eins af fórn­ar­lömbum Róbert Downey, vakti fyrst athygli á því að Brynjar og Robert hefðu báðir sinnt lög­mann­störfum fyrir stað­inn. Þá velti hann því fyrir sér hvort Brynjar væri haf­inn yfir grun um að vera hæfur til að sinna störfum í stjón­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, en þar er nú farið yfir ferlið sem veitti Roberti upp­reist æru.

Brynjar brást ókvæða við umfjöllun fjöl­miðla um málið. „Því er unnið hörðum höndum að sá tor­tryggni í minn garð og Sjálf­stæð­is­flokks­ins og látið að því liggja að við séum að verja Róbert Downey, sem mun vera einn af þeim fjöl­mörgu sem hafa fengið upp­reist æru síð­ustu ára­tugi,“ sagði Brynjar í færsl­unni.

„Þótt bent hafi verið á að þarna hafi röngum upp­lýs­ingum verið plantað í gagna­grunn herra Google hefur eng­inn net­sóð­inn iðr­ast og fær því ekki upp­reist æru hja mér.“

Þá segir Brynjar að þær upp­lýs­ingar um að hann hafi sinnt störfum fyrir Bóhem hafi verið „plantað í gagna­grunn herra Google“ og þær séu rangar. Brynjar var hins vegar titl­aður lög­maður nekt­ar­stað­ar­ins Bóhem í Morg­un­blað­inu í nóv­em­ber 2007 og svo í Frétta­blað­inu á sama tíma, þar sem hann for­dæmdi ákvörðun borg­ar­ráðs að leggj­ast gegn starf­semi nekt­ar­dans­staða í Reykja­vík.

Brynjar kallar það fólk sem vakið hefur athygli á mál­inu net­sóða. „Nú herra Google upp­lýsti sóð­ana um að Róbert þessi hefði verið lög­maður eig­anda Bóhem 2001 og að ódámur­inn Brynjar Nielsson hefði verið lög­maður þessa félags í máli á árinu 2007. Glöddust tröllin nú mjög yfir þessum upp­lýs­ingum, sem sýndu ótví­rætt að ég væri spilltur og full­kom­lega van­hæfur sem for­maður nefnd­ar­innar, og auð­vitað varð að deila þess­ari vit­neskju um alla netheima. Þótt bent hafi verið á að þarna hafi röngum upp­lýs­ingum verið plantað í gagna­grunn herra Google hefur eng­inn net­sóð­inn iðr­ast og fær því ekki upp­reist æru hja mér. Svo er mér einnig hulið hvernig það gæti valdið van­hæfi, hvað þá að það væri merki um spill­ingu, þótt allt hefði verið rétt hjá herra Google,“ segir Brynjar.

Eins og fram kemur í bréf­inu starf­aði Brynjar fyrir nekt­ar­dans­stað­inn Bóhem árið 2003. Í bréf­inu sem Brynjar und­ir­ritar er óskað eftir því að borg­ar­ráð breyti máls­með­ferð­ar­reglum vegna vín­veit­inga­leyfa þannig að Bóhem verði heim­ilað að hafa stað­inn opinn til 05:30 alla daga. Borg­ar­ráð féllst ekki á að breyta regl­unum.

Gerir lítið úr málinu

Þá sagði Bergur, í færslu sinni á Facebook, Brynjar hafa að und­an­förnu margoft gert lítið úr glæpum Róberts Árna Hreið­ars­sonar í fjöl­miðlum og um leið smættað afleið­ingar þeirra. Þannig sagði Brynjar í við­tali við mbl.is að hægt væri að brjóta með alvar­legri hætti gegn börnum en Robert Downey gerði gagn­vart fórn­ar­lömbum sínum. Robert var árið 2008 dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot gegn fjórum ung­lings­stúlkum og hlaut upp­reist æru í októ­ber í fyrra. „Það eru til al­var­legri brot held­ur en þessi gagn­vart börn­um,“ sagði Brynjar. Þá stað­hæfði hann við mbl.is að margir barn­a­níð­ingar hefðu fengið upp­reist æru.

„Eng­inn sagði neitt þá. Þetta komst bara í umræð­una því hann ætl­aði að sækja um starfs­rétt­indi sín aft­ur. Menn hafa fengið upp­reist æru sem hafa myrt ann­an mann,“ bætti Brynjar við.

Þá hefur Brynjar lýst því yfir að honum þyki eðli­legt að Róbert fái að starfa við það sem hann er mennt­aður til. „Hann er búinn að afplána og hann fær í þessu til­viki meiri refs­ingu því hann missir starfs­rétt­indin.  Hann hefur ekki brotið af sér. Hann fór í sér­staka með­ferð í betrun sinni og þá finnst mér ósköp eðli­legt að menn eigi mögu­leika á því að snúa aftur og starfa við það sem þeir eru mennt­aðir til,“ sagði Brynjar í sam­tali við Vísi.

Bróðir Brynjar, Gústaf Adolf Níelsson sagn­fræð­ingur, hefur að sama skapi tjáð sig um málið. Í færslu á Facebook sagði Gústaf að stúlk­urnar hafi „spilað á veik­leika Róberts til að hafa af honum pen­inga“ og „gert hann sér að féþúfu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár