Nokkur nýleg verk

Ólöf Helga Helga­dóttir lista­kona sýnir Kristínu Eiríks­dóttur nýleg verk og ræðir merk­ingu þeirra.

Nokkur nýleg verk
Gjörn­ingur Negldi kirkju­garð­inn fastan á spónarplötu sem pass­aði í skottið á jepp­anum og keyrði norður í land. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ólöf Helga Helga­dóttir er nýbúin að pakka saman vinu­stof­unni sinni og sækir mig á hvítum jepp­lingi, keyrir með mig í geymsl­una sem hún leigir úti á Granda. 

Á stærð við lík­kistu, segir hún og er með fölgult sól­skyggni til varnar birt­unni þennan ský­lausa sum­ar­dag.

Það er svo sem ekki mikið að sjá. Verkunum hefur verið pakkað saman og þeim staflað snyrti­lega í lík­kist­una. Hún þarf bara að sækja nokkra hluti og svo keyrum við á næsta áfanga­stað, tómu vinnu­stof­una hennar í mynd­höggv­ara­fé­lag­inu. Við ferjum verkin og papp­írana úr bílnum og inn á kaffi­stofu, þar sem við setj­umst niður með kaffi. 

Ég var búin að biðja hana um að velja fimm verk en öll verkin sem hún sýnir mér eru nokkuð nýleg. Hún dregur þau fram í tíma­röð, elsta fyrst. 

Dekkið  

Dekkið

Hún lagði dekkið á örk­ina og teikn­aði eftir því með blý­anti. Svo klippti hún hring­inn út og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár