„Tungumálið hefur gert mig ríkan. Andlega ríkan, veraldlega ríkan. Tungumálið hefur í rauninni verið minn vettvangur og við megum ekki gleyma því að þegar ég byrjaði þá var bara sagt: „Bubbi er ekki talandi á íslensku, hann er skrifblindur, getur ekki skrifað, hann getur ekki þetta, hann getur ekki hitt,“ sagði Bubbi Morthens á Bylgjunni í viðtali, þann 17. október, árið 2025, stuttu eftir að hann hafði sent frá sér neyðarkall til varnar íslenskunni, greinina Hernaðurinn gegn tungumálinu.
Í þessu viðtali á Bylgjunni, í kjölfar greinarinnar, sagði hann jafnframt: „Ég bara er að senda S-O-S, neyðarkall til íslensku ríkisstjórnarinnar og þeirra ágætu kvenna sem fara þar með völd og flokka og stjórnarandstöðu. Að stjórnarandstaðan og ríkisstjórnarflokkarnir setjist saman og geri sér grein fyrir því að við erum að renna út á tíma.“
Tímamótamaður
Árið 1980 geystist Bubbi með slagkrafti inn á íslenska tónlistarsenu þegar hann gaf út fystu sólóplötuna sína, …

























Athugasemdir