Ráðgjafi Nigel Farage tengir Mið- og Sjálfstæðisflokk við bandarískt áhrifafólk

Ráð­gjafi Nig­el Fara­ge tengdi sam­an for­ystu­fólk Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks­ins við þing­menn Re­públi­kana­flokks­ins og hug­veit­ur í Banda­ríkj­un­um. Það var gert til þess að efla tengsl flokk­anna við banda­rísk stjórn­mál.

Ráðgjafi Nigel Farage tengir Mið- og Sjálfstæðisflokk við bandarískt áhrifafólk
Styrkja tengslin Markmið forystufólks flokkanna var að styrkja tengslin við Bandarísk stjórnvöld og hitta bandarískar hugveitur.

Bæði Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hafa greitt bandarískum aðstoðarmanni breska þjóðernisíhaldsleiðtogans Nigel Farage, Zachary Freeman, milljónir króna fyrir að skipuleggja ferðir til Bandaríkjanna. Freeman hefur skráð sig sem umboðsmann þessara tveggja flokka hjá bandaríska dómsmálaráðuneytinu. Hann vill ekki gefa upp um hvaða einstaklinga hann tengdi íslensku stjórnmálamennina við en hvorki Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokks, né Bergþór Ólason, sem skrifaði undir samning við Freeman, hafa svarað fyrirspurnum Heimildarinnar.

Ráðgjafi Nigel Farage

„Bæði Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn höfðu samband við mig og sögðust vilja eiga fundi, meðal annars í Washington,“ segir Zachary G Freeman, forstjóri og eigandi Imperial Independent Media. Markmiðið var að hitta þingmenn Repúblikanaflokksins og bandarískar hugveitur að því er fram kemur í svokallaðri FARA-skráningu sem er nauðsynleg lobbíistum eða ráðgjöfum sem ætla að leiða saman bandarískt og erlent stjórnmálafólk á bandarískri grundu. Zachary er vel tengdur inn í Repúblikanaflokkinn eftir að hafa starfað sem pólitískur ráðgjafi og aðstoðarmaður kjörinna fulltrúa Repúblikanaflokksins …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár