Bílslys varð á veginum um Snæfellsnes, austan við Stykkishólm í hádeginu í dag, þegar ferðamenn óku út af veginum ofan í ísilagt vatn.
Björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi var kölluð út vegna slyssins og hafði fólkið þá klifrað upp á þak bílsins. Þar sátu þau þegar sveitin kom aðvífandi.

Aðstæður voru þannig að mikið vatn hafði safnast við veginn svo rann inn á hann að stórum hluta. Þegar fólkið kom aðvífandi virðist sem bíll þeirra hafi flotið upp þegar þau keyrðu í vatnið á veginum og ökumaðurinn misst stjórn á bílnum í kjölfarið.
Ekki urðu slys á fólkinu en það blotnaði eitthvað við þetta og farangur þeirra, sem var bjargað úr bílnum, var orðinn ansi blautur.
Björgunarsveitin flutti fólkið svo inn á Stykkishólm þar sem lögregla tók við því. Bílaleigunnar beið að ná bílnum úr vatninu og færa ferðalöngunum annan bíl til að halda ferð sinni áfram.


























Athugasemdir