Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, fundaði síðasta sumar með hópi Repúblikana sem eru hæstráðandi á skrifstofum öldungadeildarþingmanna sem hliðhollir eru stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Til umræðu var bandalag Bandaríkjanna við Norðurlandaþjóðirnar og „menningarlegar stoðir vestrænna gilda í Evrópu“. Á meðal skipuleggjenda og þátttakenda voru Repúblikanar sem tóku þátt í tilraun til að stela forsetakosningunum 2020 fyrir Trump.
Upplýsingar um fundinn koma fram í skjölum um ferðina sem staðfest hafa verið af skrifstofu öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Sigmundur Davíð svaraði ekki spurningum Heimildarinnar um málið þegar eftir því var leitað.
Ferð Repúblikananna var farin í boði Turning Point Action, bandarísks þrýstihóps sem stofnaður var af Charlie Kirk heitnum. Hópurinn hefur skipulagt kosningafundi fyrir Trump og sendi rútur af mótmælendum til Washingtonborgar 6. janúar 2021 sem endaði með árás á þinghús Bandaríkjanna þar sem staðfesta átti kosningasigur Joe Biden.
Meðal þeirra sem hittu Sigmund Davíð var Sean Riley, …


























Við eigum að forðast sem mest samskipti við öfgamenn sem þessa. Þeir hafa fullan hug á að ná auknum tökum á auðtrúa stjórnmálamönnum og glepja þá með gróðavonina í huga.