Vöruhús rís við Vesturlandsveg

17 þús­und fer­metra bygg­ing á veg­um Jysk hef­ur ris­ið und­ir Úlfars­felli við Vest­ur­lands­veg. Fram­kvæmd­irn­ar eru fyrsti lið­ur­inn í versl­un­ar­hverfi sem áform­að er að verði á stærð við Skeif­una.

Vöru- og verslunarhús sem telur 17 þúsund fermetra hefur nú risið undir Úlfarsfelli við Vesturlandsveg í Mosfellsbæ. Byggingin er hluti af nýrri uppbyggingu verslunar- og atvinnusvæðis í Mosfellsbæ sem fasteignafélagið Reitir fer fyrir. Hverfið, sem heitir Korputún, á að verða á stærð við Skeifuna og verður staðsett sunnan við Mosfellsbæ. 

„Fyrir fyrirtæki sem þurfa mikinn sýnileika“

Byggingin sem nú hefur risið mun hýsa þriggja hæða verslun, vöruhús og höfuðstöðvar JYSK, og verður sú hæsta í hverfinu. Lóðin telur um 20 prósent af svæðinu en þar er áætlað að rísi samtals 90 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði í um 30 byggingum. 

Bygging JYSK stendur næst Vesturlandsvegi en þar er gert ráð fyrir stærri byggingum „fyrir fyrirtæki sem þurfa mikinn sýnileika og eru með blandaða starfsemi,“ að því er segir á vefsíðu Korputúns.

Þá segir að Korputún verði „fyrsta atvinnuhverfið á Íslandi til að hljóta BREEAM-vottun en hún tryggir að sjálfbærar áherslur séu …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er eins og framsóknarflokkurinn, grænt sést varla en það er þarna.
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Smekkvísi skipulagsyfirvalda lætur ekki að sér hæða. Og greinilega búið að samræma fegurðarsmekkinn. Grænt gímald í öll sveitarfélög.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár