Það var ekki Kanadamaðurinn Mark Carney sem stöðvaði innrás Donalds Trump Bandaríkjaforseta í Grænland. En hann staðfesti með orðum sínum, sem leiðtogi G7 ríkis, að af henni myndi ekki verða – í einni merkustu ræðu sem haldin hefur verið í fjallaþorpinu Davos í Sviss, nú í janúar.
Það hefur orðið rof, sagði hann, ekki bara breyting. Sambandsslit, væri önnur þýðing á mikilvægasta orðinu í ræðunni allri (e. rupture not transition). Það er ekki hægt að slíta Norður-Ameríku í sundur en við höfum líklega horft upp á mestu gliðnun sem sést hefur milli þessara granna okkar. Hvað við ætlum að gera í því er líklega eitt af mikilvægustu verkefnum þessa árs.
Forsagan skiptir máli
Í ræðu Carneys vitnar hann í fræga ritgerð eftir skáldið Václav Havel sem var síðasti forseti Tékkóslóvakíu, um vald þess sem er veikari. Það hefur verið viss stefna Íslands í varnarmálum, sem varnarlauss aðila, að spila á …



























Athugasemdir