Við Ísland verða staðir vart einangraðri en Eldey. Rúmlega 75 metra hár klettadrangur rís úr hafi 15 kílómetrum suðvestan við Reykjanestá þar sem veður, vindar og þung aldan brjóta stanslaust á þessum illkleifa og friðaða útverði landsins. Flatarmálið á hatti eyjarinnar er lítið, um þrír hektarar, svipað pláss og tveir til þrír sumarbústaðir tækju til sín í þéttri sumarhúsabyggð. Hér er þó engin slík byggð enda óvistlegri stað fyrir mannfólk erfitt að finna. Hér er hins vegar paradís súlunnar, öruggt varpsvæði og frábær fiskimið allt í kring.
„Eldey er stærsta einstaka súlubyggðin á Íslandi, 40% af íslenska stofninum verpir hér. Eyjan er í raun fullsetin, stærð varpstofnsins hefur lítið sem ekkert breyst í áratugi. Maður sér að það komast ekki fleiri hreiður fyrir, hún er alveg þakin,“ segir Sindri Gíslason. Hann er doktor í sjávarlíffræði og forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands og er ásamt Sunnu Hrund Sverrisdóttur, sjávarlíffræðingi og samstarfskonu sinni, mættur …

























Athugasemdir