Mynd: Golli

„Ég er barn náttúrunnar“

Sé Kim Kielsen, for­seta græn­lenska þings­ins, flett upp á net­inu má lesa að árin sem hann var for­sæt­is­ráð­herra, 2014 til 2021, hafi hann stýrt málum sem sneru að flóknu sam­bandi Græn­lands við Banda­ríkin – og þá Pentagon – vel í höfn. Enda er hann fyrrum sjó­maður! En áhersla hans á vel­ferð barna stendur upp úr. „Börnin okkar skipta mestu máli. Ekki flug­völl­ur­inn, ekki höfnin, ekki húsin. Alltaf börnin, alltaf,“ segir hann.

Úti er þrettán stiga frost, algjör bruna­gaddur, þegar amer­ískur GMC-pall­bíll með græn­lenskum fána blakt­andi á pall­inum keyrir fram hjá blaða­mönnum í myrkri, þar sem þeir fóta sig með­fram sjónum, innan í þyrp­ingu gam­al­dags timb­ur­húsa, í leit að kvöld­mat. Bíllinn stoppar við eitt af þessum húsum sem stendur uppi í brekku og ekki úr vegi að spyrja bíl­stjór­ann út í fán­ann, í það minnsta fá af honum mynd. 

Karl­maður í kuldagalla stígur út úr pall­bílnum, þrek­inn með kímið augna­ráð þegar hann horfir með þöglu brosi á blaða­menn sem upp­götva að þarna stendur eng­inn annar en Kim Kielsen, for­sæt­is­ráð­herra Græn­lend­inga á árunum 2014 til 2021 og for­maður flokks­ins Siumut megnið af tím­anum. Nú er hann for­seti græn­lenska þings­ins. Og eins konar goð­sögn. 

Það ber á góma að við séum íslenskir blaða­menn sem viljum gjarnan tala við hann. „Já já já já,“ segir hann. 

Talarðu íslensku? 

„Já já já já,“ svarar hann …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun
ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­innar – lifði af sjálfs­vígstil­raun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.
„Ég var ofbeldisfullur“
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeld­is­fullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár