Léttir að fella grímuna

Forseti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir, faðmar að sér fanga á Litla-Hrauni og kallar þá kær­leiks­bangsa. Sjálf kærði hún aldrei mann­inn sem braut á henni í æsku.

Léttir að fella grímuna

Á dimm­ustu dögum árs­ins mæta börnin á Bessa­staði þar sem for­seti Íslands tekur á móti þeim, tendrar jóla­ljós og dansar í kringum jóla­tré. Nokkrum dögum síðar er **Halla Tóm­as­dóttir** komin á einn myrkasta stað lands­ins, inn í fang­elsið á Litla-Hrauni. Á báðum stöðum er hún með sama mark­mið: Að veita von og hlýju. Sjálf var hún barn sem þjáð­ist í þögn, þar til hún var orðin full­orðin kona og farin að rekast á veggi vegna afleið­inga kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar í æsku. Með þá reynslu í fartesk­inu tekur hún utan um menn sem hafa gerst sekir um ofbeldi og biðlar til þeirra að leita leiða til lausna.

Börnin mæta á Bessastaði

Einn mið­viku­dags­morgun í des­em­ber stendur Halla Tóm­as­dóttir í and­dyri Bessa­staða­stofu. Úti­dyra­hurðin er lokuð en hún er til­búin, klædd í græna kápu því hún vildi vera í jóla­litum og með loð­húfu, „því ég fann ekki jóla­húf­una“. Við hlið hennar stendur …

Kjósa
56
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Katrín Jónsdóttir skrifaði
    Mikið var dásamlegt að lesa þetta, takk Halla og aftur takkkk
    Og takk fyrir að setja barnamál í fyrsta sæti, gangi þér allt í haginn, yndislegt að fá konu eins og þig sem forseta, ég sendi þér hugarfaðmlag:)
    0
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Frábært og fróðlegt viðtal. Halla er sannkalaður kærleiksbangsi sem á svo mikið erindi inn í umræðuna á Íslandi.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár