Þú veist aldrei hvað nágranni þinn gengur í gegnum

Heilsa skal nágranna sínum nán­ast án und­an­tekn­inga, segir sátta­miðl­ari með sér­hæf­ingu í nágranna­erjum. Ef illa fer og fólk situr undir sví­virð­ingum, yfir­gangi, ógn­andi hegðun og jafn­vel lík­ams­meið­ingum er mik­il­vægt að sækja hjálp. „Frið­ur­inn er besti vinur okkar,“ segir hann.

Þú veist aldrei hvað nágranni þinn gengur í gegnum
Óæskileg fram­koma Haf­steinn bendir á að óæski­leg fram­koma geti komið í bakið á þeim sem hafa komið illa fram við nágranna sinn af þeirri ein­földu ástæðu að þeir gætu þurft að leita til hans seinna vegna sinna íbúð­ar­vanda­mála. Mynd: Golli

Haf­steinn Gunnar Haf­steins­son hefur í gegnum tíð­ina unnið við sátta­miðlun, meðal ann­ars í tengslum við nágranna­erjur. Hann segir að fólk þurfi fyrst og fremst að hafa í huga að það þurfi að koma fram við nágranna sína eins og þeir vilja að nágrannar sínir komi fram við sig. 

„Nánast án und­an­tekn­inga skal heilsa nágranna sínum þrátt fyrir ein­hverjar óþægi­legar upp­á­komur. Mik­il­vægt er að leggja sig fram um að reyna að kynn­ast aðeins, alla­vega upp að vissu marki. Ýmislegt er hægt að gera til að fólk kynn­ist hvert öðru.“

Þetta á ekki síst við í nábýli, eins og fjöl­býl­is­húsum. Þar er til dæmis hægt að skipu­leggja daga til að sinna eign­unum, koma saman og gera huggu­legt og vinna að úrbótum á sam­eign. „Ef börn búa í hús­inu er hægt að sam­ein­ast um að gera eitt­hvað fyrir þau. Eins og að kaupa trampólín, lítil fót­bolta­mörk eða leik­tæki og setja þau upp saman. Slíkar fram­kvæmdir þurfa þó að vera sam­þykktar af meiri­hluta íbúa á hús­fundi. Þetta gætu verið hags­munir 40 pró­sent eða 80 pró­sent íbúa og öðrum íbúum finnst kannski of mikið í lagt. En ef það næst sam­komu­lag um eitt­hvað álíka, þá er það fal­legt og gott og eykur á gleði í sam­fé­lag­inu.“

Auka má sam­heldni íbúa á fleiri vegu. Haf­steinn nefnir til dæmis sam­eig­in­lega grill­veislu til að fólk kynn­ist nágrönnum sínum betur en ella. Hann bendir á að ef fólk þekk­ist þá eigi það auð­veld­ara með að leita til hvert ann­ars og bera upp mál við hvert annað á upp­byggi­legan hátt. Að sama skapi er lík­legra að það mynd­ist meiri skiln­ingur á milli fólks.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GM
    Gretar Marinosson skrifaði
    "Þegar upp koma hegðunarvandamál í húsfélögum, einhver missir stjórn á hegðun sinni gagnvart öðrum íbúa, þá er mikilvægt að halda ró sinni og bíða með að leysa máið"
    „Friðurinn er besti vinur okkar en aftur á móti bælir öll streita ónæmiskerfið, veldur veikindum og ótímabærri öldrun. Þess vegna er svo mikilvægt að leysa vandamálin strax eða finna leiðir til að láta vandann ekki hafa nein áhrif á sig.“
    Hvort er skynsamlegra?
    0
  • Brynhildur Magnúsdóttir skrifaði
    Takk fyrir þetta. Hafsteinn hjálpaði okkur í húsinu með verulega erfið samskipti við einn eiganda hússins og tókst að höggva á verulega slæman hnút sem öll samskipti voru komin í
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár