Fimmtíu sjósundsferðir á fimmtugsafmælisárinu

Þrjár kon­ur sem stunda sjó­sund hafa í ár far­ið fimm­tíu sinn­um í sjó­sund í til­efni fimm­tugsaf­mæl­is síns og vekja at­hygli á söfn­un því tengdu til styrkt­ar Grens­ás. Ein þeirra dvaldi þar á sín­um tíma eft­ir al­var­legt slys á Teneri­fe. Henni líð­ur sér­stak­lega vel í sjón­um vegna verkja sem hún er alltaf með.

Fimmtíu sjósundsferðir á fimmtugsafmælisárinu
Sjávarsystur Íris, Monika og Sif. Íris segir að í fyrsta lagi sé sjósund náttúrutenging. Skyndibiti fyrir sálina. Mynd: Golli

Aðalbjörg Sif Kristinsdóttir, Íris Hrund Halldórsdóttir og Monika Waleszczynska kynntust í tengslum við sjósundið sem þær hafa stundað um árabil. Þar sem þær urðu allar fimmtugar á árinu hefur hver þeirra farið fimmtíu sinnum í sjósund á mismunandi stöðum, en þó ekki endilega saman. Monika bendir á að það sé áskorun að finna fimmtíu staði til að fara í sjó, þar sem það þarf meðal annars að huga að öryggi. Þær höfðu mismikinn áhuga á sundi áður en þær fóru að stunda sjósund. Fjórða konan í hópnum, Erna Héðinsdóttir, var ekki í bænum þegar viðtalið var tekið.

Aðalbjörg Sif, sem kölluð er Sif, segist vera íþróttakona að upplagi, en hún æfði fimleika í tíu ár. Hún æfði einnig sund í hálft ár á sínum tíma þegar búið var að vígja nýju sundlaugina í Garðabæ árið 1989. „Bekkjarsystir mín plataði mig til þess að vera með, en það var verið að …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár