Far­ald­ur­inn Sýnataka í Íslenskri erfða­grein­ingu þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst. Enn er fólk að glíma við afleið­ingar veirunnar, með lang­vinnt COVID eða ME-sjúk­dóm­inn sem hefur aldrei greinst í jafn ríkum mæli og und­an­farin ár. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ungu fólki í blóma lífsins er allt í einu kippt út úr samfélaginu

Þó svo að ME-sjúk­dóm­ur­inn hafi senni­lega verið til í aldir hefur hann lengi farið hljótt og verið lítt við­ur­kenndur. Ástæða þess er vænt­an­lega sú að þar til nú hefur verið erfitt að skilja mein­gerð sjúk­dóms­ins. Þrátt fyrir að mjög skert lífs­gæði og að byrði sjúk­dóms­ins sé meiri en hjá sjúk­lingum með aðra alvar­lega sjúk­dóma er þjón­usta við þá mun minni en aðra sjúk­linga­hópa.

Í ljósi sög­unnar hefði það ekki átt að koma á óvart að Covid-19 far­ald­ur­inn myndi valda lang­tíma­veik­indum hjá sumum ein­stak­lingum. Veiru­far­aldrar munu halda áfram að herja á mann­kynið og því brýnt að við lærum af reynsl­unni, eflum þekk­ingu og með­ferð­ar­rúræði og verðum betur und­ir­búin þegar næsti far­aldur kemur.

ME-sjúk­dóm­ur­inn, eða myalgic encephalomyelitis, kemur oft­ast í kjöl­far sýk­inga, hann getur komið í far­öldrum, eins og í Akur­eyr­ar­veik­inni um miðja síð­ustu öld og nú með Covid-19, en einnig eftir algengar sýk­ingar sem eru stöðugt til staðar í sam­fé­lag­inu, meðal ann­ars einkirn­inga­sótt. Ekki er vitað hvað veldur því að sumir ein­stak­lingar ná sér ekki að fullu eftir slíkar sýk­ingar og sitja uppi með langvar­andi ein­kenni eins og lang­tíma Covid og ME-sjúk­dóm­inn en hann er alvar­leg­asta birt­ing­ar­myndin af þessum lang­vinnum eft­ir­köstum sýk­inga.

Aukinn skilningur eftir faraldurinn 

Með lang­vinnu Covid og stofnun Akur­eyr­ar­klíník­ur­innar árið 2024 hefur eðli ME og áhrif sjúk­dóms­ins á líf fólks verið …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ME-faraldur

Ekki geðveila heldur alvarlegur sjúkdómur
ViðtalME-faraldur

Ekki geð­veila heldur alvar­legur sjúk­dómur

Lilja Sif Þór­is­dóttir er félags­ráð­gjafi hjá Akur­eyr­ar­klíník­inni en hún segir ME og lang­tíma Covid-sjúk­linga gjarnan hafa mætt algjöru skiln­ings­leysi þó að sjúk­dóms­ein­kennin hafi verið hörmu­leg. Stjórn­völd og sam­fé­lagið þurfi að koma til móts við þetta fólk, til dæmis með því að bjóða upp á aukin hluta­störf, þegar við á, það sé dýrt að missa svo marga úr vinnu eins og raun ber vitni.
Eini sjúkdómurinn sem kenndur er við Ísland
ViðtalME-faraldur

Eini sjúk­dóm­ur­inn sem kenndur er við Ísland

„Þegar hann sá pass­ann hennar hróp­aði hann upp yfir sig: Iceland, Icelandic dise­ase! og hún sagði honum að hún hefði sjálf veikst af sjúk­dómnum,“ segir Óskar Þór Hall­dórs­son, sem skrif­aði bók um Akur­eyr­ar­veik­ina þar sem ljósi er varpað á alvar­leg eft­ir­köst veiru­sýk­inga. Áhugi vís­inda­manna á Akur­eyr­ar­veik­inni sem geis­aði á miðri síð­ustu öld hefur verið tölu­verður eftir Covid-far­ald­ur­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár