„Má ég sjá raunveruleg skilríki?“ spurði lögreglumaðurinn þegar ljósmyndari Heimildarinnar rétti honum blaðamannaskírteini Blaðamannafélags Íslands á leið sinni inn í veislu Vítisengla í Kópavogi um síðustu helgi. Ríkislögreglustjóri hefur verið með mikinn viðbúnað vegna veisluhalda Hells Angels í Kópavogi og vöktu aðgerðirnar mikla athygli um miðjan september þegar þrír voru handteknir, þar af einn fyrir að muna ekki kennitöluna sína. Lögreglan sagði þá að eftirlitið væri tilkomið vegna ábendinga frá alþjóðlegu lögreglunni í Evrópu, Europol, en vélhjólasamtökin eru flokkuð sem alþjóðleg glæpasamtök.
„Við erum að hafa eftirlit með þessu“
Ekki hefur komið skýrt fram hvað fólst í þeirri ábendingu, en lögreglan hefur verið með sams konar viðbúnað þegar erlendir gestir Vítisenglanna hafa sótt vélhjólaklúbbinn heim. Blaðamaður er náfrændi liðsmanns Hells Angels, Einars Hans Þorsteinssonar, en þeir eru bræðrasynir. Spurði hann því hvort blaðamaður ásamt ljósmyndara mættu mæta …
Athugasemdir