Eftirlegukindur  Árneshrepps

Eftirlegukindur Árneshrepps

Á Ströndum hjálp­ast allir að við smala­mennsk­una. Fé er enn á fjórum bæjum. Þótt kindum hafi fækkað er leit­ar­svæðið enn jafn­stórt. Þangað flykk­ist því fólk alls staðar að í leitir. Þeirra á meðal er fyrr­ver­andi Íslands­met­hafi í 100 kíló­metra hlaupi.

Það er enn myrkur þegar fólk fer á fætur í Finn­boga­staða­skóla í Tré­kyllis­vík í Árnes­hreppi á Ströndum kaldan laug­ar­dags­morgun seint í sept­em­ber og gerir sig klárt í göngur og seinni réttir.

Skólinn, sem gekk nýlega í end­ur­nýjun líf­daga þegar piltur og stúlka hófu þar skóla­göngu eftir nokkur tóm­leg ár, er aftur orð­inn fullur af lífi. Virka daga á milli rétta hefur stað­ar­hald­ar­inn og leið­bein­and­inn Sigrún Sverr­is­dóttir boðið öllum sínum gestum á grunn­skóla­aldri að taka þátt í skóla­starf­inu. „Mest voru fimm aðkomu­krakkar hér í vik­unni. Sjö nem­endur í allt. Það er jafn­margt og var í skól­anum árið 2016, áður en snar­fækk­aði,“ segir Davíð Már Bjarna­son.

Sigrún, kona hans, rekur skól­ann auk þess sem þau hjónin tóku við búskap í Litlu-Ávík þegar þau fluttu í sveit­ina með Viktoríu, dóttur sinni, fyrir fáum árum.

Heima­sætanViktoría Dav­íðs­dóttir gerir sig klára fyrir smala­mennsku dags­ins.
…
Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár