Ísland „viðkvæmt fyrir ytri áföllum“ vegna innflutnings lykilhráefna

Lág korn­fram­leiðsla og olíu­birgðir eru meðal þátta sem skapa „veik­leika í inn­lendri mat­væla­fram­leiðslu.“ Þetta kemur fram í nýrri sam­an­tekt um fæðu­ör­yggi frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Engar reglur eða kerfi eru um lág­marks­birgðir. Flestir Íslend­ingar búa þó við gott aðgengi að mat­vælum í dag.

Ísland „viðkvæmt fyrir ytri áföllum“ vegna innflutnings lykilhráefna
Lyk­il­hrá­efni inn­flutt „Meira en 95 pró­sent af korn­vörum, ávöxtum og jurta­ol­íum auk veru­legs hluta græn­metis eru inn­flutt,“ segir í sam­an­tekt atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Golli

„Tak­mörkuð korn­fram­leiðsla og litlar olíu­birgðir eru meðal atriða sem skapa veik­leika í inn­lendri mat­væla­fram­leiðslu,“ segir í nýrri sam­an­tekt um fæðu­ör­yggi á Íslandi. Atvinnu­ráðu­neytið birti sam­an­tekt­ina í Sam­ráðs­gátt­inni á þriðju­dag. Þar segir að mik­il­vægt sé „að styrkja birgða­keðjur, efla korn­rækt og byggja upp við­eig­andi birgða­hald til að auka við­náms­þol“.

Ísland reiðir sig á alþjóða­mark­aði til að tryggja stöðugt fram­boð af ýmsum lyk­il­hrá­efnum fæðu­fram­leiðslu og fæðu­flokkum. „Meira en 95 pró­sent af korn­vörum, ávöxtum og jurta­ol­íum auk veru­legs hluta græn­metis eru inn­flutt,“ segir í sam­an­tekt­inni. Slíkt á einnig við um kjarn­fóður, áburð, olíu, vélar og lyf. „Þessi staða gerir Ísland við­kvæmt fyrir ytri áföllum, hvort sem þau stafa af póli­tískri spennu eða lofts­lags­breyt­ingum.“

…

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Það er ekki skrítið að matvælaframleiðsla dragist saman þegar ríkið er að mjög litlu leiti að styrka eða styðja við landbúnað og garðyrkju. Þegar ég bjó í Bretlandi styrktu þeir bændur mun betur. Hér var alltaf talað um að ríkið styrkti landbúnað meira en aðrar þjóðir en málið er að víða er ríkisstyrkur ti bænda en svo eru það héruðin sem styrkja verulega matvælaframleiðslu á sínu svæði.. Og þá í raun fá flest lönd meiri styrk frá hinu opinbera til bænda og garðyrkjubænda. Við verðum að passa okkur á að vera eins mikið sjálfbær og hægt er..Maður hefði haldið að covid hefði vakið fólk til meðvitundar um það. Allavega ætti t.d. rafmagnsverð að vera á sama verði til garðyrkjubænda og til álversins. Við eigum að hlúa að undirstöðu samfélagsins..alls staðar.
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Umræða um fæðuöryggi hefur meira og minna verið blekkingarleikur, sem byggst hefur aðallega á þröngri sérhagsmunapólitík landbúnaðar, sem gerir út á ríkissjóð. Eins og fram kemur í greininni, væri hér á landi svo til engin framleiðsla matvæla án innfluttra aðfanga.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár