Þoka og sólskin við sjávarsíðuna

Margir upp­lifðu í morgun að vakna í sól­skini en fyrr en varði voru þeir komnir inn í þoku­bakka. Veð­ur­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands segir alvana­legt að þegar jafn hlýtt erí lofti og und­an­farið að ein­hverjir lands­hlutar lendi í þoku við sjáv­ar­síð­una

Þoka og sólskin við sjávarsíðuna
Þoku­bakk­arnir minnk­uðu skyggnið í Reykja­vík í morgun Mynd: Golli

Margir höf­uð­borg­ar­búar upp­lifðu í morgun að leggja af stað í vinnu eða skóla í sól­skini en fyrr en varði voru þeir komnir inn í þoku­bakka þar sem þeir sáu varla í kring um sig. 

Birgir Örn Hösk­ulds­son, vakt­haf­andi veð­ur­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands, segir þoku­bakk­ana vera við vest­ur­strönd­ina, svæðið frá Reykja­nesi og yfir á Vest­firði. Þeir hafi sömu­leiðis verið á Suð­ur­landi í morgun en þar sé farið að létta til. 

„Þoku­bakk­arnir koma utan af hafi, hér er þetta þoka sem kemur utan af Faxaflóa,“ segir hann. „Það er búið að vera mjög hlýtt und­an­farið. Oftast þegar svona hlýtt loft kemur til lands­ins þá kólnar það að neðan yfir sjónum og það mynd­ast þoka. Það er venju­legt ástand þegar það er svona hlýtt loft að ein­hverjir lands­hlutar lendi í þoku við sjáv­ar­síð­una. Loftið er hlýrra en sjór­inn og þar kólnar allra neðsta lagið,“ segir hann. 

En það er ekki bara þoka á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur einnig mistur sem þau á Veð­ur­stof­unni hafa velt fyrir sér í morgun. Birgir segir að um sé að ræða þoku þegar skyggnið fer undir kíló­metra, þegar fólk er í raun inni í skýi,  en í mistr­inu sér fólk mun lengra þó útsýnið verði óskýr­ara þegar lengra dregur. 

„Það er ekki alveg ljóst af hverju þetta mistur er. Það er lít­ill sem eng­inn vindur, loftið er stöðugt næst jörðu og land­ast lítið upp. Þetta gæti verið salt sem fellur úr þoku­bökk­unum eða leifar úr eld­unum síðan í gær,“ segir hann en það kvikn­aði til að mynda í ruslagámi á gáma­stæði Terra í Hafn­ar­firði í gær. „Það hefur ekki verið neinn vindur síðan þannig að það er ekki víst að þetta hafi náð að fjúka í burtu. Það er líka fínt svifryk að mæl­ast, en í litlu magni. Þetta er það helsta sem okkur dettur í hug, án þess að við vitum það; saltagnir eða leifar af bruna síðan í gær. Það er síðan alltaf ein­hver mengum frá bílum og í svona ástandi bæt­ist hún ofan á,“ segir Birgir og tekur fram að þetta séu helstu til­gát­urnar um ástæður mist­urs­ins.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár