„Viltu muna mig?“

Krist­ín S. Bjarna­dótt­ir, starfar við líkn­ar- og lífs­loka­hjúkr­un á Ak­ur­eyri, en held­ur jafn­framt úti hjálp­ar­línu til Gaza.

„Það er verið að brenna börn til bana. Kremja þau undir rústum. Sprengja þau í tætlur. Stundum þarf að tína líkin upp sem tætlur, settar í poka,“ segir Kristín S. Bjarnadóttir, sem notar frítíma sinn til að styðja við fjölskyldur á Gaza í gegnum myndaspjall á Facetime.

Starfsreynslan veitir henni styrk þegar hún hjalar við börn sem gætu dáið í næstu árás Ísraelsmanna. Hún þekkir orðið börnin vel og veit að fjölskyldan kvíðir nóttinni þegar lesið er í hljóð sprengjuflugvéla, svo vön þeim að þau greina á hljóðinu hvort árás sé í vændum eða ekki. Ef það heyrist í þyrlu eru þau viss, árás er á leiðinni. Og foreldrar sofa þétt upp við börnin svo þau deyi saman ef sprengja fellur á tjaldið.

Til að hughreysta börnin nær hún stundum í hundana sína tvo, Skotta og Astro, sem tóku á móti blaðamanni á heimili Kristínar, Sigluvík í Eyjafirði.

Hundarnir …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sóley María Kristínardóttir skrifaði
    Gríðarlega mikilvæg umfjöllun, ég vona að hún verði til þess að fleiri rétti fram lífsnauðsynlega hjálparhönd.
    1
  • KHS
    Kristín Hildur Sætran skrifaði
    Auður og Ingibjörg, TAKK! Óhemjumikilvægt að lesa um Kristínu og núna Guðnýju. En getið þið skýrt hvers vegna Ísland setur ekki viðskiptabann á Ísrael? Heyrðist ráðherra segja í hádegisfréttunum að það væri ástæða þess að ekki væri hægt að hætta viðskiptum við Rapyd? Hvaða öfl hér heima eru þar að baki?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár