Minnast páfa sem var elskaður, dáður og virtur

Forseti Íslands, biskup, for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra – fyrsti og eini íslenski ráð­herr­ann sem er kaþ­ólskrar trúar – tóku þátt í minn­ing­ar­messu Frans páfa í Landa­kots­kirkju. Páfinn hafði orð á sér fyrir að vera auð­mjúkur maður sem tók afstöðu með jað­ar­settu fólki.

Minnast páfa sem var elskaður, dáður og virtur

Fjöldi fólks var saman kom­inn við sér­staka minn­ing­ar­messu og bæna­stund fyrir sálu Frans páfa í Dóm­kirkju Krists kon­ungs í Landa­koti á þriðju­dag. Þær fregnir bár­ust heims­byggð­inni á annan dag páska að páf­inn væri allur. 

Biskup kaþ­ólsku kirkj­unnar á Íslandi, David Tencer OFMCAP, sagði í predikun sinni í minn­ing­ar­mess­unni: „Í dag syrgja hann bræður okkar og systur frá öðrum trú­ar­brögðum og trú­ar­hópum líka og játa af hrein­skilni að Frans páfi gerði svo mikið í þágu sam­ein­ingu allra sem trúa á Guð. Hann opn­aði dyr gagn­kvæms skiln­ings á hæsta stigi og það verður ekki ein­falt að halda áfram án áhrifa hans og per­sónu­legs eld­móðs.“

„Það verður ekki ein­falt að halda áfram án áhrifa hans og per­sónu­legs eld­móðs“
David Tencher
biskup kaþ­ólsku kirkj­unnar á Íslandi

Bisk­upinn rifj­aði einnig upp góð kynni af páfa, til að mynda nú í febr­úar þegar full­trúar kaþ­ólsku kirkj­unnar á Íslandi hafi farið, ásamt öðru trú­ar­fólki frá Norð­ur­lönd­unum, í píla­gríms­ferð þar sem Frans páfi hafði hitt hóp­inn í Vatík­an­inu og farið meðal þeirra í hjóla­stól sínum, sem hann not­aði síð­ustu árin vegna heilsu­brests. Árið 2018, þegar fagnað var 50 ára afmæli stofn­unar kaþ­ólska Reykja­vík­ur­bisk­ups­emb­ætt­is­ins, hafi páf­inn sömu­leiðis tekið á móti hópi frá Íslandi „og tal­aði við okkur mjög per­sónu­lega,“ sagði séra David í predik­un­inni. 

„Ég minn­ist hans sem alveg ein­staks páfa
Guðrún Karls Helgu­dóttir
biskup Íslands

Frans páfi var fæddur í Buenos Aries í Argent­ínu þann 17. des­em­ber 1936 og var 88 ára að aldri þegar hann lést. Hann hét Jorge Mario Bergoglio en tók sér nafnið Frans þegar hann varð páfi eftir heilögum Frans frá Assísí, sem var tákn auð­mýktar, friðar og virð­ingar fyrir sköp­un­inni. Frans páfi var fyrsti páf­inn í tólf aldir sem kom ekki frá Evrópu og var einnig fyrsti páf­inn úr reglu Jesúíta. Á páska­dag, dag­inn áður en hann lést, ávarp­aði hann mann­fjöld­ann af svölum Pét­urs­kirkju í Vatík­an­inu og óskaði öllum gleði­legra páska. Hann var heldur veik­burða, en í febr­úar hafði hann þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús vegna lungna­bólgu. Hann gat ekki flutt sína hefð­bundnu blessun en erki­biskup las upp skila­boð páfans þar sem hann for­dæmdi til að mynda stöðu mála á Gaza-strönd­inni, gyð­inga­hatur, en einnig þá fyr­ir­litn­ingu sem jað­ar­settum og flótta­fólki er sýnd. 

Liðsmaður lítilmagnans

Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands, segir minn­ing­ar­mess­una hafa verið afar fal­lega. „Það hefur alltaf þýð­ingu að sýna náung­anum virð­ingu og sam­hug. Páfinn skiptir ekki aðeins máli fyrir kaþ­ólsku kirkj­una því það má segja að allur hinn kristni heimur líti til páfans að ein­hverju leyti. Orð hans hafa vægi. Það skiptir okkur öll máli hver er páfi og að mínu mati þá stóð Frans páfi sig ákaf­lega vel. Það var gott að vera við þessa stund. Hún var fal­leg, ein­læg og  gott að finna sam­hug­inn sem var þar,“ segir hún. Guðrún minn­ist Frans páfa sem ein­staks manns „vegna þess hvernig hann horfði á heim­inn með augum okkar minnstu systk­ina og stóð með þeim sem minnst mega sín, flótta­fólki, fólki sem bjó við fátækt, fólki í stríðs­hrjáðum löndum, jafn­vel sam­kyn­hneigðum. Þannig að ég minn­ist hans sem alveg ein­staks páfa að þessu leyti,“ segir hún. 

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var einnig við­stödd minn­ing­ar­at­höfn­ina: „Þetta var fal­leg stund í Landa­kots­kirkju. Frans var fram­sýnn páfi, öfl­ugur tals­maður friðar og stóð alltaf með þeim sem minnst mega sín. Það er mikil eft­ir­sjá eftir honum. Miss­ir­inn er auð­vitað sárastur hjá kaþ­ólska sam­fé­lag­inu, sem syrgir sterkan leið­toga, og ég votta söfn­uði kaþ­ólskra á Íslandi sér­staka samúð mína.“

„Frans var fram­sýnn páfi, öfl­ugur tals­maður friðar og stóð alltaf með þeim sem minnst mega sín
Kristrún Frosta­dóttir
for­sæt­is­ráð­herra

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann í sögu íslenska lýð­veld­is­ins sem er kaþ­ólskrar trúar og hafði þessi stund í Landa­kots­kirkju því sér­staka þýð­ingu fyrir hana: „Þetta var hátíð­leg messa í minn­ingu mæts manns. Hann var mjög merki­legur páfi; auð­mjúkur, sýndi mikla sam­kennd, tal­aði fyrir friði og barst ekki mikið á. Hann var liðs­maður lít­il­magn­ans, þeirra sem minna máttu sín.“

Hún segir að sem kaþ­ólikki hafi henni fund­ist gott að sjá ákveðna tóna frá honum sem kannski höfðu ekki sést áður. „Hann gerði ótrú­lega mikið fyrir stóran hóp kaþ­ólikka víðs vegar um heim­inn, hvort sem það eru konur eða aðrir. Hann var svo­lítið kær­leik­ur­inn upp­mál­aður,“ segir Þor­gerður Katrín. Þá hefur hún tekið eftir því hversu mikil hlýja, virð­ing og vænt­um­þykja í garð hans hefur skinið frá helstu trú­ar­leið­togum um allan heim: „Það segir mikið um hvernig páfi hann var. Hann var að vissu leyti frjáls­lyndur innan kirkj­unnar.“

Forseti og utanríkisráðherra til Rómar

Frans páfi verður lagður til hinstu hvílu á laug­ar­dag í Róm, í kirkju heil­agrar Maríu. Hann verður fyrsti páf­inn í 120 ár til að vera jarð­settur utan Vatík­ans­ins og þykir það sýna vel hvernig maður hann var að óska eftir lát­laus­ari útför en venja er fyrir þegar kemur að páfum. 

„Hann var mjög merki­legur páfi; auð­mjúkur, sýndi mikla sam­kennd, tal­aði fyrir friði og barst ekki mikið á
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir
utan­rík­is­ráð­herra

Þor­gerður Katrín verður við­stödd athöfn­ina sem utan­rík­is­ráð­herra en for­seti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir, verður þar einnig. Reiknað er með miklum fjölda við útför­ina en þar verða full­trúar á annað hund­rað ríkja um allan heim, svo sem for­seti Banda­ríkj­anna, for­seti Frakk­lands, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og for­seti Úkraínu. 

„Það er heiður fyrir mig sem utan­rík­is­ráð­herra að fá að fylgja þessum merki­lega páfa fyrir Íslands hönd en auð­vitað er þetta líka til­finn­inga­legt fyrir mig, ég við­ur­kenni það alveg, sem kaþ­ólikki. Hann var elsk­aður, dáður og virtur, líka af mér, af kaþ­ólikkum um allan heim og ekki bara af kaþ­ólikkum. Það hefur verið gott að sjá og lesa fal­leg orð um Frans páfa frá fólki með ólíkan bak­grunn og ólíkar trú­ar­skoð­anir,“ segir Þor­gerður Katrín. 

„Mér finnst mik­il­vægt að við sýnum honum einmitt þessa virð­ingu sem verið er að gera hér heima í þess­ari fal­legu athöfn sem var í kirkj­unni minni, og síðan sem verður á laug­ar­dag­inn þar sem mér skilst að verði mikið mann­haf. Í mann­haf­inu munu Íslend­ingar eiga sína full­trúa og við viljum þakka fyrir það sem hann gerði í þágu friðar og frelsis um heim allan,“ segir hún. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár