Föngun Climeworks stendur ekki undir eigin losun

Climeworks fangar aðeins brot af því CO2 sem það lofar að vélar þess geti fangað. Fyr­ir­tækið nær ekki að kolefn­is­jafna þá losun sem stafar af umsvifum þess – sem hefur vaxið hratt síð­ustu ár.

Climeworks á Íslandi hefur ein­göngu fangað rétt rúmar 2.400 kolefn­is­ein­ingar frá því það hóf starf­semi á Íslandi árið 2021 af tólf þús­und ein­ingum sem for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa ítrekað haldið fram að vélar félags­ins geti fangað. Þetta stað­festa tölur ann­ars vegar frá finnska fyr­ir­tæk­inu Puro.Earth og úr árs­reikn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins hins vegar. Climeworks hefur ratað í heims­fréttir vegna kolefn­is­föng­unar beint úr and­rúms­loft­inu. Til þess notar fyr­ir­tækið stórar vélar sem eru stað­settar á Hell­is­heiði. Þær eru sagðar hafa getu til þess að safna fjögur þús­und tonnum af CO2 á hverju ári beint úr and­rúms­loft­inu.

Samkvæmt gögnum sem Heim­ildin hefur er ljóst að það mark­mið hefur aldrei náðst og er svo komið að Climeworks fangar ekki nóg af kolefn­is­ein­ingum til þess að kolefn­is­jafna sinn eigin rekstur, sem los­aði 1.700 tonn af CO2 árið 2023. Sú losun sem á sér stað vegna umsvifa Climeworks er því meira en það fangar. Frá því fyr­ir­tækið hóf …

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Julius Valsson skrifaði
    Frábær blaðamennska! Loftslagsruglið ríður ekki við einteyming.
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Is it all about green washing?
    1
  • Jón Björn Eysteinsson skrifaði
    Frábær grein kominn tími til ađ upplýsa um þetta svindl .
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár