Markmiðið að skapa umhverfi sem stuðlar að vellíðan

Harpa Stef­áns­dóttir er pró­fessor í skipu­lags­fræði við LbhÍ, en rann­sókn­ar­svið hennar og dokt­ors­gráða varðar hvernig fólk metur feg­urð í borg­ar­um­hverfi. Hún fæst við rann­sóknir á þessu sviði, ásamt sam­göngu­málum, hefur verið og er í umfangs­miklum alþjóð­legum rann­sókn­arteymum um skipu­lags­mál. Hún er einnig for­maður Skipu­lags­fræð­inga­fé­lags Íslands. Egill Sæbjörns­son ræðir hér við hana um skipu­lags­mál og upp­bygg­ingu með til­liti til feg­urðar.

Markmiðið að skapa umhverfi sem stuðlar að vellíðan

Sæl, Harpa, þú ert pró­fessor í skipu­lags­fræði og nú starf­andi við skipu­lags- og hönn­un­ar­deild Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands. Mig langar að spyrja: Hvað er það sem skiptir mestu máli varð­andi þróun byggðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu? 

„Almenn­ings­sam­göngur sem virka er fyrsta for­gangs­mál. Heild­ar­ferða­tím­inn er það sem  skiptir fólk mestu máli um val þess á sam­göngu­máta, hvort það tekur til dæmis frekar strætó eða vill reiða sig á einka­bíl­inn. Almenn­ings­sam­göngur þurfa að vera áreið­an­legar, tíðar og vera á  sér­a­kreinum, þannig að heild­ar­ferða­tím­inn sé hlut­falls­lega hag­stæður miðað við bíl. Ef fyrst er  tryggt að fólk geti farið ferða sinna með öðrum leiðum en með einka­bílnum á ásætt­an­legum tíma  og á þægi­legan hátt, þá er hægt að fækka bílum, fækka bíla­stæðum og vinna til baka það land sem farið hefur undir sam­göngu­mann­virki einka­bíls­ins og taka undir bygg­ingar og græn svæði. Það er ekki hægt að taka einka­bíl­inn af fólki, akreinar og bíla­stæði ef það er ekki öfl­ugt …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SG
    Sigrún Guðmundsdóttir skrifaði
    Mjög gott samtal. Það þarf miklu meiri umræðu um skipulagsmál í dag. Og, - það er sárt að horfa á þróun bygginga í höfuðborginni í dag. Það er eins og þær séu pantaðar úr erlendum katalóg ... tilbúnar einingar úr sama kassa ...
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár