„Það mun alltaf birta aftur“

Berta Þór­halla­dóttir er þjálf­ari með menntun í jákvæðri sál­fræði, við­skipta­fræði og mark­þjálfun. Hún ákvað að helga líf­inu hreyf­ingu og þjálfun eftir áfall árið 2016 þegar hún missti son sinn aðeins þriggja daga gamlan.

„Það mun alltaf birta aftur“
Berta Þór­halla­dóttir Ákvað að gera draum sinn um að þjálfa fólk að veru­leika árið 2016. Í dag þjálfar hún full­orðið fólk á öllum aldri og nýtur þess að miðla þekk­ingu. Mynd: Aðsend

Berta Þór­halla­dóttir mælir með því að fólk finni sér skemmti­lega hreyf­ingu, setji svefn í for­gang og myndi félags­leg tengsl til að við­halda heilsu í dag­legu lífi. Hún er við­skipta­fræð­ingur að mennt með meistara­gráðu í jákvæðri sál­fræði og brennur fyrir hreyf­ingu. Berta segir það óþarfi að flækja hlut­ina, góður göngutúr geti gert gæfumun.

Lét drauminn rætast

Hreyfing hefur alltaf átt stóran þátt í lífi Bertu en það var árið 2016 sem hún ákvað að helga sig heilsu og þjálfun eftir að hún missti son sinn Nóa aðeins þriggja daga gamlan. „Þá umturn­að­ist lífið,“ segir Berta. „Heilsa og hreyf­ing hafa alltaf verið stór hluti af líf­inu mínu en í kjöl­farið af áfalla­vinnu þá fann ég hvað hreyf­ing skipti miklu máli og mig lang­aði að láta gott af mér leiða fyrir aðra.“ Hún ákvað því að elta draum­inn um að vinna sem þjálf­ari. „Mig lang­aði að heiðra minn­ing­una hans Nóa með því að …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár