Snýst um félagsskapinn frekar en að toppa tinda

Þrjár vin­konur sem hafa bak­grunn í fjalla­mennsku standa á bak við göngu­hóp­inn Fjall­kyrjur. Jákvætt, hvetj­andi og heil­brigt umhverfi er leið­ar­stef hóps­ins og stefnan er ekki endi­lega sett á hæsta fjallið. Félags­skap­ur­inn skiptir mestu máli.

Snýst um félagsskapinn frekar en að toppa tinda
Í öllum regn­bog­ans litum Fjall­kyrjur er sam­fé­lag kvenna sem njóta eða langar að læra að njóta þess að stunda fjall­göngur og úti­veru í skemmti­legum hópi kvenna. Mynd: Fjallkyrjur

Fjall­kyrjur er kær­leiks­ríkur kvenna­hópur sem nýtur þess, eða langar að læra að njóta þess, að stunda fjall­göngur og úti­veru í skemmti­legum hópi kvenna. Fjall­kyrjur eiga rætur sínar að rekja í kvenna­hóp í Ferða­fé­lagi Íslands sem nefn­ist Kvenna­kraftur. „Fjall­kyrjur er okkar eigið verk­efni, okkur þótti mik­il­vægt að standa vörð um þennan kjarna, konur sem eru að byrja, sem skila sér svo oft í hina hópana,“ segir Eyrún Vikt­ors­dóttir, ein af þremur fjall­stýrum Fjall­kyrja, en ásamt henni stýra Dögg Ármanns­dóttir og Kolbrún Björns­dóttir göngum hóps­ins. Allar hafa þær unnið við leið­sögn í fjölda ára og stýrt hópum á fjöllum.

„Við viljum búa til jákvætt, hvetj­andi og heil­brigt umhverfi þar sem stefnan er ekki endi­lega sett á hæsta fjallið eða að fara hrað­ast yfir. Þetta snýst meira um félags­skap­inn sem okkur er svo annt um og við viljum byggja upp,“ segir Eyrún. Vor­verk­efni Fjall­kyrj­anna hófust í febr­úar og það er mik­ill hugur í Fjall­kyrjum að takast á við fjöl­breytt verk­efni með hækk­andi sól. 

Fjall­stýrurEyrún Vikt­ors­dóttir, Dögg Ármanns­dóttir og Kolbrún Björns­dóttir stýra göngum Fjall­kyrja.

„Það eru margar konur sem hafa verið með okkur í mörg ár og svo eru ein­hverjar sem taka sér pásu og koma svo aftur inn. Við höfum lítið þurft að peppa upp stemn­ingu, þær hafa alveg séð um það sjálfar. Þetta er orð­inn mik­ill vin­kvenna­hópur,“ segir Eyrún. 

„Ég varð eig­in­lega bara háð því að kynna aðrar konur fyrir þessum töfrum“
Eyrún Vikt­ors­dóttir
fjall­stýra

Sjálf hefur hún stundað úti­vist frá því að hún man eftir sér. „Það er eng­inn sér­stakur byrj­un­ar­reitur, þetta hefur verið við­loð­andi frá því í æsku, frá því að ég var í pollagall­anum sem krakki. Það er eitt­hvað við úti­vist­ina sem er svo heill­andi, hún er svo nær­andi. Mér fannst það líka hjálpa til við að halda striki í námi, að fá útrás, ég fann ein­hverja teng­ingu í úti­vist­inni og hún hefur knúið mig áfram í öllu sem ég geri, og enn þann dag í dag. Ég varð eig­in­lega bara háð því að kynna aðrar konur fyrir þessum töfrum af því að ég hafði sjálf upp­lifað það svo sterkt hvað lífið varð betra og allt auð­veld­ara með úti­vist­inni.“

Upp á fjallEyrún leiðir fjall­kyrjur á Akra­fjall. Útivist hefur verið hluti af líf­inu frá því að hún man eftir sér.

Öruggt umhverfi eftir getustigi

Eyrún hefur einnig bak­grunn úr starfi í björg­un­ar­sveit­inni en hún fór í gegnum nýliða­þjálfun og hefur verið virk í starfi björg­un­ar­sveit­anna. „Þar kemur öryggi og fjalla­mennska inn, sem er líka ágætt því við erum allar með svo ólíkan bak­grunn, okkur þykir mik­il­vægt að við séum ekki allar eins, við erum allar frekar ólíkar en samt með þessa sömu sýn. Allar fjall­stýrur hafa notað úti­vist­ina til góðs.“

Úr varð að Eyrún, Dögg og Kolbrún ákváðu að stofna tvenns konar göngu­hópa: Fjall­kyrjur I og Fjall­kyrjur II. „Við erum með þessa tvo hópa sem eru getu­skiptir og okkar sál er rosa mikið í þessum konum sem eru ann­að­hvort nýjar eða að koma sér aftur af stað, jafn­vel eftir veik­indi eða bara lífið. Það er alls konar sem getur gengið á í lífi kvenna. Okkur fannst mik­il­vægt að bjóða þeim öruggan stað í göngum og úti­vist,“ segir Eyrún. 

Fjall­kyrjur I hentar þeim sem eru að byrja í göngum og þeim sem eru van­ari en vilja njóta og ganga aðeins hægar yfir. Hópurinn fer í göngu annað hvert mið­viku­dags­kvöld og einn sunnu­dag í mán­uði, sam­tals ell­efu göngur. Kvöld­göng­urnar í mesta myrkr­inu snú­ast um að vera í núinu, fá hreyf­ingu og súr­efni og upp­lifa hversu magnað það er fyrir bæði lík­ama og sál að ganga úti í skamm­deg­inu og í raun auð­veld­ara en margar halda enda eru þær göngur oft og tíðum í miklu upp­á­haldi kvenna, að sögn Eyrúnar. Helg­arnar eru svo nýttar til að kanna nýjar slóðir og njóta umhverf­is­ins og útsýnis.

Aðal­málið er að fara út og hreyfa sig, njóta þess að vera í nátt­úr­unni í góðum félags­skap. „Hópur eitt er fyrir þær sem eru nýjar og kannski hræddar við að byrja. Við viljum búa til öruggt fyrsta skref fyrir þær til þess að stíga inn í úti­vist­ina. Það er engin for­krafa um neitt nema áhuga. Sömu­leiðis fyrir þær sem hafa ekki áhuga á að ganga hratt. Ótrúlegt en satt þá eru ekk­ert allir sem vilja ganga hratt eða fara hátt, okkur fannst mik­il­vægt að það væri pláss fyrir þann hóp kvenna,“ segir Eyrún. 

Líf og fjörFjall­kyrjur bregða á leik á Brekku­kambi í Hval­firði.

„Jæja“-konurnar

Fjall­kyrjur II hentar þeim sem eru vanar göngum. Hópurinn fer í aðeins meira krefj­andi göngur en hópur I, annað hvert þriðju­dags­kvöld og einn laug­ar­dag í mán­uði, sam­tals ell­efu göngur. Eyrún kallar kon­urnar í þessum hópi stundum „Jæja-kon­urnar“. „Þær eru svo ótrú­lega kröft­ugar, það má ekki setj­ast niður og taka bita af nest­inu áður en ein­hver segir „jæja“. Þær eru svo ótrú­lega spenntar og hvetj­andi og vilja kom­ast á topp­inn. Við leyfum okkur að fara aðeins lengra og hærra með þann hóp. Þær eru öllu vanar.“

„Það má ekki setj­ast niður og taka bita af nest­inu áður en ein­hver segir „jæja““
Eyrún fjall­stýra
um fjall­kyrj­urnar í hópi II
Nest­ispásaDögg og Eyrún fjall­stýrur njóta nest­ispásu, sem er oft­ast styttri í hópi II en hópi I, ákaf­inn er slíkur.

Með því að skipta hóp­unum í tvennt vilja fjall­stýr­urnar tryggja að hver kona finni sinn stað, ekki síst til að efla sjálfs­traustið. „Það eru ein­hverjar sem halda að þær geti ekki neitt og mæta í hóp eitt en svo eiga þær engan veg­inn heima þar og það er auð­velt fyrir okkur að geta stað­sett þær og hvetjum þær til að finna sig í réttum hópi,“ segir Eyrún. Lítið mál er að færa sig milli hópa yfir önn­ina. „Við viljum bara að hver og ein geti notið sín og leyfum þessu að flæða eins og konur þurfa á að halda.“

Starfinu er skipt upp í tvær annir: Vorstarf og haust­starf og greitt er fyrir hverja önn. Um 30 konur eru í Fjall­kyrjum I en örlítið fleiri í hópi II, eða um 35–40. Hægt er að fylgj­ast með starf­inu og fá upp­lýs­ingar um næstu verk­efni með því að leita uppi „Fjall­kyrjur“ á Facebook.  Samfélag Fjall­kyrja fer nefni­lega ört stækk­andi.

En hvaða þýð­ingu hefur það að til­heyra félags­skap eins og Fjall­kyrjum? 

„Það er per­sónu­bundið, ég held að flestar sem hafa áhuga á úti­vist tengj­ast í gegnum að mæta. Við höfum séð ólík­ustu konur tengj­ast og verða vin­konur sem hefðu lík­leg­ast aldrei náð saman undir venju­legum kring­um­stæðum. Það er ótrú­lega fal­legt að sjá hvað það er hægt að víkka sjón­deild­ar­hring­inn með því að kynn­ast alls konar fólki í gegnum sam­eig­in­legt áhuga­mál,“ segir Eyrún. 

Áfram gakkGöngur Fjall­kyrja eru fjöl­breyttar.

Fjall­stýrunni fall­ast hendur þegar hún er beðin um að velja upp­á­halds­göngu með Fjall­kyrj­unum hingað til. Þær eru ótelj­andi. „Við áttum mjög góða göngu í Eld­vörpum á Reykja­nesi þegar verið var að bíða eftir gosi. Við vorum þar í lok nóv­em­ber í dásam­legu veðri, það var sól og eng­inn snjór. Við fórum í 20 kíló­metra göngu og þegar við komum til baka voru heima­menn að spila golf og við vorum búnar að leggja fyrir gámana þar sem þeir voru með golf­bíla, okkur datt ekki í hug að ein­hver væri að spila golf á þessum tíma.“

Glymur í Hval­firði er sömu­leiðis í upp­á­haldi. „Okkur þykir hann voða nota­legur og konur hafa notið þess að vera þar með okkur. Það er erfitt að velja eina göngu af því að þetta snýst kannski meira um þessi litlu augna­blik, þessar litlu, stuttu göngur, jafn­vel bara upp á Úlf­ars­fell eða Helga­fell. Það þarf ekki meira til til að finna töfrana í hóp­unum. Það eru ekki tind­arnir heldur frekar félags­skap­ur­inn sem situr eftir.“

Fjall­kyrjurGöngu­hópur Fjall­kyrja við Trölla­foss.




Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár